Þegar hungur er eina vopnið

Ramazan Fayari seg­ist heldur vilja deyja á Íslandi, en að vera sendur aftur til Afganistan þar sem þjóð­ar­brot hans sætir ofsóknum og árásum. Hann hefur nú verið í hung­ur­verk­falli í mánuð. Ísland heldur áfram að beita Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni þrátt fyrir að fyrir liggi að evr­ópsk stjórn­völd hygg­ist áfram­senda við­kom­andi til Afganistan þar sem stríðs­á­tök hafa færst í auk­ana und­an­farin ár.

Þegar hungur er eina vopnið
Ramazan Nokkrum dögum eftir að þessi mynd var tekin var Ramazan lagður inn á spít­ala vegna hung­ur­verk­falls­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ramazan Fayari er mátt­far­inn, fölur og nið­ur­dreg­inn. Augna­ráðið í björtum aug­unum er fjar­rænt og hann á það til að taka með báðum höndum um höf­uðið á sér og grúfa sig niður í borðið. Svengdin er farin að segja til sín en hann hefur ekk­ert borðað frá því hann fékk þær fréttir að beiðni hans um frestun rétt­ar­á­hrifa hefði verið synjað. Þriðja neit­unin og yfir­vof­andi er brott­vísun til Sví­þjóðar, þaðan sem hann verður sendur aftur til Afganistan. Það eina sem Ramazan hefur nú vald yfir í eigin lífi er hvað hann setur ofan í sig og þess vegna ákvað hann að fara í hung­ur­verk­fall.

„Ég vil frekar deyja á Íslandi en í Afganistan,“ útskýrir þessi ungi piltur, sem að eigin sögn er 17 ára en íslensk stjórn­völd hafa við með­ferð máls­ins ákveðið að sé full­orð­inn maður. 

Við sitjum í dimmum sal í kjall­ara Laug­ar­nes­kirkju. Við borðið sitja tveir aðrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár