Segir skýrt að það sé ekki heimilt að fara í Selárlaug eftir lokun

Sveit­ar­stjóri Vopna­fjarð­ar­hrepps hefur ekki kært inn­brot í Sel­ár­laug til lög­reglu eftir að fimm þing­menn fóru þangað inn í leyf­is­leysi. Sveit­ar­stjór­inn segir það skýrt að það sé óheim­ilt að fara í laug­ina eftir lokun og þetta sé ekki eitt­hvað sem menn eiga að gera.

Segir skýrt að það sé ekki heimilt að fara í Selárlaug eftir lokun
Sel­ár­laug Eins og sjá má á myndum er sund­laugin afgirt til þess að afmarka svæðið. Mynd: Af vef Vopnafjarðar

„Ég hef ekki fengið neinar upp­lýs­ingar um að mönnum hafi verið veittar heim­ildir,“ segir Björn Ingi­mars­son, starf­andi sveit­ar­stjóri Vopna­fjarð­ar­hrepps, spurður út í umdeilda sund­ferð þing­manna sem RÚV greindi frá fyrir helgi. Þing­menn­irnir sögð­ust hafa fengið leyfi fyrir ferð­inni. 

Fimm þing­menn munu hafa farið í Sel­ár­laug eftir lokun og eru þeir sagðir vera Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, Þórarinn Ingi Pét­urs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Þor­grímur Sig­munds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, Ingi­björg Isaksen, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Jens Garðar Helgason, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hugmyndin kviknaði yfir kvöldverði

Hópurinn fór í sund í kjör­dæma­vik­unni en hug­myndin kvikn­aði yfir kvöld­verði á hót­el­inu Foss­gerði ásamt full­trúum úr sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps eftir kynn­ingu frá Six Rivers, fyr­ir­tæki Jims Ratcliffe.

„Ég hef ekki fengið neinar upp­lýs­ingar um að mönnum hafi verið veittar heim­ildir“
Björn Ingi­mars­son
starf­andi sveit­ar­stjóri Vopna­fjarð­ar­hrepps

Þórarinn Ingi, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í sam­tali við RÚV að sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi hefði gefið leyfi fyrir sund­ferð­inni og …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu