Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), sagði í dag að bandalagið myndi verjast ógnum úr geimnum. Hann svaraði þá spurningu um fréttir þýskra fjölmiðla þess efnis að Rússar kunni að undirbúa skot gervihnattar með kjarnavopni á loft.
Í fréttunum, sem byggja á upplýsingum ónafngreindra heimildarmanna innan þýska hersins og leyniþjónustunnar BND, sagði að talið væri að stjórnvöld í Moskvu hygðust skjóta hnettinum á loft á næstu vikum. Með honum gætu þau eyðilagt aðra gervihnetti.
Rutte var spurður um fréttirnar í heimsókn til Berlínar og hét því: „Við munum ávallt verja hvern þumlung landsvæðis NATO og tryggja að við séum einnig örugg gagnvart ógnum í geimnum.“
Friedrich Merz Þýskalandskanslari, sem ræddi við fjölmiðla ásamt Rutte, hvorki staðfesti né vísaði fréttunum á bug en lýsti áhyggjum sínum.
„Fréttir af því að Rússar hyggist koma kjarnavopnum fyrir í geimnum eru ekki nýjar, en þær eru engu að síður jafn …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
























































Athugasemdir