Hvað í gagnrýni Ingvars stenst?

Þing­mað­ur­inn Ingvar Þór­odds­son skipti um flokk og gekk úr stjórn í stjórn­ar­and­stöðu vegna þess sem hann kallar „svik“ Við­reisnar við kjós­endur. Í til­kynn­ingu sinni til­tók hann fjölda ástæðna.

Horfði til Guðrúnar
Horfði til Guðrúnar Ingvar gekk til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk Guðrúnar Haf­steins­dóttur í gær, eftir að hafa lýst yfir eft­ir­sjá yfir atkvæði sínu með sam­göngu­á­ætlun á Alþingi. Mynd: Golli

Ingvar Þór­odds­son, sem sagði sig úr Viðreisn og gekk til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í gær, rök­studdi ákvörðun sína með skatta­hækk­unum, breyt­ingum á rík­is­fjár­málum og því sem hann telur van­rækslu rík­is­stjórn­ar­innar á lands­byggð­inni.

Í Facebook-færslu, þar sem hann til­kynnti ákvörð­un­ina, setti hann fram fjöl­margar stað­hæf­ingar um ákvarð­anir stjórn­valda, fjár­veit­ingar og efndir kosn­inga­lof­orða. Heim­ildin bar þær saman við opin­ber gögn til að kanna hvað stenst og hvar frek­ari skýr­inga er þörf.

1. Ríkið tekur stærri hluta landsframleiðslunnar til sín

Miðað við for­sendur fjár­laga­frum­varps­ins fyrir árið 2027 verða tekjur rík­is­sjóðs hærra hlut­fall af lands­fram­leiðslu en gert var ráð fyrir í fjár­lögum þessa árs. Ríkið tekur þannig til sín stærri hluta af kök­unni.

Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir að heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs verði 30,6 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu, sam­an­borið við 30,1 pró­sent árið 2026. Hlutfall skatt­tekna og trygg­inga­gjalda hækkar jafn­framt úr 26,4 pró­sentum í 27 pró­sent.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ríkissjóður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár