Landsréttur staðfesti sýknudóm yfir guðfræðingnum og prestinum Arnaldi Mána Finnssyni í gær. Föðurbróðir hans og kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Þór Gunnlaugsson höfðaði málið gegn honum og er málið afleiðing harðra deilna innan fjölskyldunnar sem hverfast um æskuheimili föður Arnalds Mána, Hvilft á Flateyri. Húsið er rúmlega hundrað ára gamalt og tæplega 300 fermetrar að stærð. Eignin stendur rétt fyrir utan bæinn.
Kvikmyndagerðarmaðurinn taldi einnig Arnald Mána misnota stöðu sína hjá Þjóðkirkjunni í samskiptum sínum við fyrirtækjaskrá með því að notast við vinnupóstinn sinn.
Lekið til „vafasamra fjölmiðla“
Ummælin sem um ræðir voru látin falla í tölvupósti á milli fjölskyldumeðlima, að því er fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í maí á síðasta ári, og er þar lýst hörðum samskiptum milli Einars Þórs og annarra í félaginu Hvilft ehf. Svo virðist sem Einar Þór hafi verið afar ósáttur við aðra hluthafa í félaginu.
Birtist þetta meðal annars …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir