Kvikmyndin You Can See Everything, um hinn svikula tæknifrumkvöðul Elizabeth Holmes, slær nú í gegn í kvikmyndahúsum um heim allan.
Áköf viðbrögð við myndinni valda því að mér líður dálítið eins og gömlum manni sem hefur klæðst sama prjónavestinu alla tíð og hrópar út í vindinn þegar prjónavesti koma skyndilega í tísku: „Ég uppgötvaði þetta á undan ykkur!“
Holmes varð fræg þegar hún þóttist hafa fundið upp tækni sem gæti greint fjölda sjúkdóma með einum blóðdropa. Sem sérleg áhugamanneskja um óheiðarlega frumkvöðla (ég kann ekki á skíði og stunda ekki golf) hafði ég beðið heimildarmyndarinnar með óþreyju frá því að hún var ekki annað en orðrómur á bandarískum slúðurmiðlum.

Áhyggjur mínar af því að myndin þætti ekki nógu líkleg til vinsælda til að vera sýnd í bíó breyttust skyndilega í áhyggjur af því að fá ekki miða á frumsýningardag: Það var uppselt á flestar sýningar.
Mér tókst þó loks að finna miða á sýningu klukkan hálfellefu um morguninn. Þegar ég gekk út þremur tímum síðar var ég sannfærð um að það hefði verið þess virði að skrópa í vinnuna: Fimm stjörnur.
Smám saman runnu hins vegar á mig tvær grímur.
Róttækt gagnsæi
Árið 2014 krýndi viðskiptatímaritið Forbes Elizabeth Holmes yngsta sjálfskapaða kvenkyns milljarðamæring heims. Holmes var ekki nema nítján ára þegar hún stofnaði fyrirtækið Theranos og laðaði að sér fjárfesta með persónutöfrum og meintri tímamótauppfinningu.
Þótt lengi hefðu verið uppi efasemdir um fyrirtækið var það ekki fyrr en eftir þrautseigju uppljóstrara og blaðamanns The Wall Street Journal að hulunni var svipt af sannleikanum: Theranos var blekking.
Í upphafi kvikmyndarinnar You Can See Everything lofar sambýlismaður Holmes, Billy Evans, áhorfendum „róttæku gagnsæi“ (e. radical transparency). Kvikmyndagerðarmaðurinn Nathan Fielder flytur inn á heimili fjölskyldunnar og fylgist með hverju andartaki síðustu dagana í aðdraganda þess að Holmes hefur afplánun ellefu ára fangelsisdóms fyrir að svíkja fé út úr fjárfestum.
Niðurstaða myndarinnar er hins vegar, rétt eins og fyrirtækið Theranos, blekking.

Bambi og Forrest Gump takast á
Í stað þess að nýta hið einstaka tækifæri sem honum bauðst til að leita sannleikans kýs Fielder að fórna honum á altari skemmtanagildisins.
Vart er hægt að líta af kvikmyndatjaldinu þar sem Holmes starir stórum augum á Fielder eins og teiknimyndadádýrið Bambi og heldur fram sakleysi sínu. Að sama skapi er bráðfyndið að fylgjast með Fielder gera sér upp barnslegt skilningsleysi gagnvart mótsögnum viðmælanda síns eins og hann sé andsetinn af Forrest Gump.
Staðreyndir málsins virðast þeim hins vegar jafn óviðkomandi og alþjóðastjórnmál væru tveimur leikskólabörnum sem ræddu stöðu heimsmálanna yfir hafragraut.
„Í stað þess að nýta hið einstaka tækifæri sem honum bauðst til að leita sannleikans kýs Fielder að fórna honum á altari skemmtanagildisins
Sláandi dæmi er til að mynda fullyrðing Holmes þess efnis að blaðamaður New York Times hafi haft rangt eftir henni í viðtali og þannig reynt að sverta mannorð hennar. Kveðst Holmes geta sannað brot blaðamannsins því hún eigi upptöku af samskiptum þeirra. Ekkert bólar hins vegar á upptökunni. Fielder gerir ásökunina þó að þungamiðju myndarinnar og sáir efa í huga áhorfandans um sekt Holmes.
Sannleikurinn er ekki alltaf torræður
„Lygarinn byrjar á að láta ósannindi líta út fyrir að vera sannleika og endar á því að láta sannleikann líta út fyrir að vera lygi“, ritaði 18. aldar skáldið William Shenstone.
Kvikmyndin You Can See Everything hefur hlotið mikið lof fyrir að varpa ljósi á hverfulleik sannleikans. Í máli Elizabeth Holmes er sannleikurinn hins vegar ekki nærri jafn torræður og myndin gefur til kynna. Fyrir liggja óyggjandi gögn um svik og pretti frumkvöðulsins, frásagnir starfsfólks sem reyndi að vara við vélabrögðunum en var kúgað til þagnar og blaðamenn sem lögfræðingar Theranos hótuðu lögsóknum.
„Holmes hefur nú veröldina að fífli öðru sinni og telur okkur trú um að „róttækt gagnsæi“ sé sama og sannleikur
Holmes er ekki það einhliða skrímsli og margir vilja vera láta. En hún er ekki heldur sú Móðir Teresa sem Fielder – viljandi eða óviljandi – dregur upp mynd af í kvikmynd sinni.
Besta mynd ársins?
Blóðskimunartækni Holmes var blekking. Holmes hefur nú veröldina að fífli öðru sinni og telur okkur trú um að „róttækt gagnsæi“ sé sama og sannleikur.
You Can See Everything er talin eiga möguleika á því að verða fyrsta heimildarmynd sögunnar sem hlýtur tilnefningu til Óskarsverðlauna sem besta kvikmynd ársins. Myndin er hins vegar ekki heimildarmynd.
Ekki er þó þar með sagt að hún eigi ekki skilið Óskarinn. Mynd Nathans Fielder er nefnilega fimm stjörnu skáldskapur sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir