Um Heimildina

Heimildin er fréttamiðill í dreifðri eignaraðild sem byggir afkomu sína, og þar með hagsmuni sína, á dreifðum hópi almennings.

Heimildin kom fyrst út föstudaginn 13. janúar 2023 eftir að aðstandendur Stundarinnar og Kjarnans ákváðu að sameina krafta sína utan um sameiginlegan tilgang: Að beita rannsóknarblaðamennsku til að veita almenningi aðgengi að óháðum upplýsingum.

Saga

Bæði Stundin og Kjarninn voru stofnuð utan um sama höfuðtilgang og af sambærilegu tilefni. Árið 2013 stofnuðu Þórður Snær Júlíusson, Magnús Halldórsson og fleiri Kjarnann eftir inngrip eiganda í umfjöllun viðskiptadeildar Fréttablaðsins. Árið 2015 stofnuðu Heiða B. Heiðarsdóttir, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Jón Ingi Stefánsson og Jón Trausti Reynisson Stundina með hjálp hópfjármögnunar, í kjölfar óvinveittrar yfirtöku fjársterkra aðila á DV.

Eignarhald

Útgáfufélag Heimildarinnar er Sameinaða útgáfufélagið ehf. Hluthafar þess eru rúmlega tuttugu og enginn þeirra fer með meira en 10% hlut. Hluthafaskráin er birt hér á vefnum. Í takt við grunnreglu útgáfunnar um valddreifingu verður bundið í samþykktir útgáfufélagsins að enginn fari með meira en 10% atkvæða á aðalfundi, óháð eignarhlut.

Grunnstefna Heimildarinnar gengur út á sjálfbæran rekstur sem viðheldur sjálfstæði ritstjórnar. Heimildin mun dafna og vaxa í beinu samhengi við vilja áskrifenda.

Ritstjórn

Ritstjóri Heimildarinnar er Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, stofnandi og fyrrverandi ritstjóri Stundarinnar. Aðstoðarritstjóri er Aðalsteinn Kjartansson. Framkvæmdastjóri útgáfufélags Heimildarinnar er Jón Trausti Reynisson, stofnandi, framkvæmdastjóri og fyrrverandi ritstjóri Stundarinnar. Hönnunar- og þróunarstjóri er Jón Ingi Stefánsson, stofnandi og fyrrverandi hönnunarstjóri Stundarinnar.

Áskrift

Áskrift fæst á heimildin.is/askrift og í netfanginu askrift@heimildin.is.

Þeim sem hafa áhuga á að leggja Heimildinni lið er bent á netfangið starf@heimildin.is.

Hafa samband

Síminn hjá Heimildinni er 415 2000. Við mælum eindregið með því að fólk sendi okkur tölvupóst og við bregðumst við því um leið og færi gefst. Eins er hægt að senda okkur símanúmer í tölvupósti og við munum þá hringja til baka.

Starfsfólk

Netföng og símanúmer