Myndbirting Morgunblaðsins „á ekkert skylt við mig eða mitt líf“

Kona sem er múslimi var mynd­birt með umfjöllun Morg­un­blaðs­ins um þiggj­endur fjár­hags­að­stoðar. Hún er starfs­maður á leik­skóla.

Röng myndbirting
Röng mynd­birt­ing Saraa Almasri segir nið­ur­lægj­andi að Morg­un­blaðið hafi birt mynd af henni með frétt um þiggj­endur fjár­hags­að­stoðar. Hún starfar á leik­skóla. Mynd: Facebook

Ung kona sem flutti til Íslands frá Palest­ínu var gerð að and­liti þiggj­enda fjár­hags­að­stoðar frá Reykja­vík­ur­borg í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins í gær. Í frétt Morg­un­blaðs­ins sagði frá því að rúm­lega helm­ingur þeirra sem þáðu fjár­hags­að­stoð frá borg­inni væri „af erlendu bergi brot­inn og flestir frá Úkraínu“.

Morg­un­blaðið deildi hins vegar frétt­inni með mynd af starfs­manni leik­skóla í Reykja­vík, sem vill svo til að er erlend kona. Myndin var tekin á mót­mælum gegn þjóð­ar­morði á hendur Palest­ínu­mönnum af hálfu Ísraels.

Deili­mynd Morg­un­blaðs­insMorg­un­blaðið deildi mynd­inni af Saraa einnig á Facebook með frétt um þiggj­endur fjár­hags­að­stoðar.

Konan, Saraa Almasri, segir í við­tali við frétta­vef­inn Mannlíf að mynd­birt­ingin hafi verið nið­ur­lægj­andi. „Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá ljós­mynd af mér not­aða sem aðal­mynd í frétt Morg­un­blaðs­ins, þrátt fyrir að myndin hefði ekk­ert með efni frétt­ar­innar að gera,“ segir hún.

Þar kveðst hún vera vinnu­söm kona sem leggi metnað sinn í starf og sjálf­stæði. Hún hafi starfað á leik­skóla í þrjú ár. Þannig eigi mynd­birt­ingin með frétt­inni „ekk­ert skylt við mig eða mitt líf,“ segir konan við Mannlíf.

Margir gagn­rýndu mynd­birt­ing­una með frétt Morg­un­blaðs­ins, sem birt var upp­haf­lega í fimmtu­dags­blaði þess sem frídreift er inn á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Þetta er eitt það ljótasta sem ég hef séð í fréttum á Íslandi,“ sagði fjöl­miðla­mað­ur­inn Egill Helgason á Facebook. „Þarna er fjallað um fólk af erlendum upp­runa sem þiggur aðstoð frá Reykja­vík­ur­borg. Það fólk kemur frá ýmsum þjóðum. En með frétt­inni er af ein­hverri ástæðu birt mynd af konu sem ég hef leitað mér upp­lýs­inga um. Mér er tjáð að hún sé ein­stæð móðir, hörku­dug­leg, vinni sín störf af trú­mennsku og hafi náð góðum tökum á íslensku. Hvað vakir fyrir mönnum að birta svona?“

Morg­un­blaðið skipti út mynd­inni af kon­unni í frétt sinni á mbl.is fyrir mynd af Ráðhúsi Reykja­víkur. Í prent­aðri útgáfu sem dreift var inn á heim­ili borg­ar­búa er hins vegar Saraa enn and­lit þeirra sem þiggja fjár­hags­að­stoð frá borg­inni, þrátt fyrir að vera laun­aður starfs­maður á leik­skóla.

Frétt Mannlífs má lesa hér.

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Mogginn ætti að ráða Vivek Ramaswamy sem ritstjóra, svona svo þeir geti sigrað kapphlaupið á botninn. MAGA er hætt að nota hann svo hann ætti að vera laus.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár