Skila­boðin Öll skila­boðin og sím­tölin á milli Jóhann­esar Stef­áns­sonar og Þor­steins Más Bald­vins­sonar, frá mars 2013 til ágúst 2016, í tíma­röð. Hvert strik er eitt orð. Skilaboð Þor­steins Más eru í bláu, og læsi­leg eru skila­boð hans um við­skiptin í Namibíu og Angóla.

Skýr skilaboð Þorsteins Más

Stríður skilaboða­straumur Þorsteins Más Baldvins­sonar, fyrr­verandi forstjóra Samherja, til framkvæmda­stjóra Namibíu­útgerðar fyrir­tækisins varpar nýju ljósi á umfangs­mesta mútumál sem upp hefur komið á Íslandi. Þorsteinn Már fylgdist náið með samskiptum við ráðherra og lýsti ánægju sinni eftir leynifund með honum.

„Saell, thu lætur heyra I ther thegar thu getur. En thurfum ad fara yfir nokkur mal,“ skrifaði Jóhannes Stef­ánsson yfirmanni sínum, Þorsteini Má Baldvins­syni, þá forstjóra Samherja. Þetta var síðdegis þann 11. nóvember árið 2014. Þorsteinn svaraði um hæl að hann myndi hringja þegar hann væri lentur í Lundúnum, þangað sem hann var að fljúga.

Jóhannes upplýsti þá Þorstein um að það væri „allt gott ad fretta“.

Undan­farna mánuði hafði Samherji byggt upp þétt og náin tengsl við menn í Namibíu sem síðar hafa verið kallaðir hákarlarnir: Tamson Hatuikulipi, tengda­pabba hans, Bernhard Esau sjávar­útvegs­ráðherra, frændann James Hatuikulipi og æskuvin hans og samstarfs­mann, Sacky Shanghala, sem síðar átti eftir að verða dómsmála­ráðherra.

„Godur fundur med strakunum og big man a bondabillnu sidustu helgi og framtidin bjort fyrir okkur. Their kunna ad meta studninginn fra okkur og hafa flott aform i huga fyrir okkur,“ skrifaði Jóhannes þá Þorsteini og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár