Trump vill láta rannsaka hagtölur

Donald Trump Bandaríkja­forseti sakar yfirvöld um vísvitandi skekkju eftir að mat á hagvexti var hækkað úr 3,4 í 4,3 prósent. Slíkar endur­skoðanir eru þó algengar.

Kalkúnn náðaður
Kalkúnn náð­aður Donald Trump Banda­ríkja­for­seti við árlega athöfn í Hvíta hús­inu þar sem kalkúnn er náð­aður. Í færslu í til­efni þakk­ar­gjörð­ar­há­tíð­ar­innar sak­aði hann yfir­völd um að hafa birt rangar hag­tölur fyrir kosn­ingar. Mynd: FINN GOMEZ / Getty Images via AFP

Donald Trump Bandaríkja­forseti kallaði í dag eftir rannsókn á hefð­bundinni endur­skoðun hagvaxtar­talna. Hann hélt um leið áfram að halda fram stað­lausum full­yrðingum um íhlutun í bandarísku þing­kosningarnar á miðju kjör­tímabili.

Trump réðst á það sem hann kallaði „FALSKAR“ tölur, degi eftir að bandaríska viðskipta­ráðuneytið hækkaði mat sitt á hagvexti á þriðja ársfjórðungi verulega, úr 3,4 prósentum í 4,3 prósent. Slíkar endur­skoðanir eru algengar.

„Hvers vegna var rétta talan ekki birt fyrir kosningarnar? Ég fer fram á tafar­lausa rannsókn á þessu máli,“ skrifaði Trump á samfélags­miðil sinn Truth Social.

„Þetta er ekki smávægileg skekkja, heldur gríðarleg og vísvitandi skekkja.“

Trump fylgdi þessu eftir með annarri, langri færslu í tilefni þakkar­gjörðar­hátíðarinnar í Banda­ríkjunum. Þar beindi hann einnig spjótum sínum að ýmsum þeim sem hann lítur á sem andstæðinga og gagn­rýnendur umfangs­mikilla breytinga sinna á Hvíta húsinu.

„Ég vil óska öllum gleðilegrar þakkar­gjörðar­hátíðar, jafnvel þeim sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár