Voru í sjónum í tæpar sex klukkustundir

Samkvæmt tímalínu Landhelgis­gæslunnar tók það rétt tæpan einn og hálfan tíma að bjarga sjómönnum Jökuls ÞH þegar þyrlan var komin á vettvang.

Þyrlan á vettvangi
Þyrlan á vett­vangi Þyrlan var komin á slys­stað klukkan 21:21. Mynd: Landsbjörg

Sjómennirnir á Jökli ÞH voru í sjónum í tæpar sex klukku­stundir samkvæmt tímalínu frá Landhelgis­gæslunni. Það tók skipið um það bil nítján mínútur að sökkva. Þrír létust en sautján var bjargað í þyrluna.

Skip­stjórinn á Jökli ÞH hafði samband við stjórnstöð Landhelgis­gæslunnar klukkan 17:05 í gær og sagði þá lúgu brotna að aftan og sjór kominn í skipið. Þetta kemur fram í tímalínu Landhelgis­gæslunnar. Skip­stjórinn tilkynnti að 17 væru um borð í skipinu og stjórnstöð bað áhöfnina um að fara í flotgalla.

Aðeins mínútu síðar, eða 17:06, voru viðbragðs­aðilar kallaðir út og öll skip beðin um að halda á slys­staðinn. Skip­stjórinn hafði svo samband aftur 17:17 og sagði þá alla komna í flotgalla og að áhöfn væri að yfirgefa skipið. Hann tilkynnti enn fremur að ekki hefði náðst að losa björgunarbát og misst þann sem náðist að losa frá skipinu en hann rak frá þeim í volkinu. Skip­stjórinn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár