Hátt í fjörutíu vitni í aðalmeðferð meints eltihrellis

Íris Helga Jón­atans­dóttir mun sitja ein í Hér­aðs­dómi Reykja­ness á mánu­dag­inn og svara til saka. Hátt í fjör­tíu vitni hafa verið boðuð vegna aðal­með­ferðar máls­ins sem tekur fjóra daga.

Fyrir dómi
Fyrir dómi Íris Helga Jón­atans­dóttir í Hér­aðs­dómi Reykja­ness þegar málið var þing­fest fyrr á árinu. Aðal­með­ferð máls­ins hefst á mánu­dag­inn. Mynd: Golli

Á fjórða tug vitna að minnsta kosti munu mæta í Hér­aðs­dóm Reykja­ness á mið­viku­dag­inn í næstu viku vegna rétt­ar­halda yfir Írisi Helgu Jón­atans­dóttur sem hefur verið ákærð fyrir umsát­ursein­elti og marg­vís­leg brot því tengdu. Aðal­með­ferðin hefst næsta mánu­dag og mun standa yfir í að minnsta kosti fjóra daga sam­kvæmt áætlun hér­aðs­dóms. Mögulegt er að vitna­listi gæti breyst, en áætlað er nú að 35 vitni verði leidd fyrir dóm­ara úr ólíkum áttum.

Íris Helga er ákærð fyrir að hafa að mestu hrellt þrjá menn, en einnig fyrir rangar sak­ar­giftir, skjala­fals, hót­anir, æru­meið­andi aðdrótt­anir og barna­vernd­ar­laga­brot. Brotin bein­ast alls gegn níu brota­þolum, full­orðnum ein­stak­lingum og börnum þeirra. Ákæru­skjalið taldi 17 blað­síður og voru ákæru­lið­irnir 68 tals­ins.

Þar eru listuð upp fjöl­mörg ólík afbrot, allt frá röngum sak­ar­giftum, svo sem …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Aldrei er eg með svona að vera að ónáða folk einhvernvegin hringdi bar á einn stað en er alveg hætt því
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár