Var boðuð í hátt í 50 skýrslutökur

Íris Helga Jón­atans­dóttir, sem hefur verið ákærð fyrir umsvifa­mikið umsát­ursein­elti, neit­aði að mestu sök í dómi í morgun. Hún upp­lýsti að hún hefði verið boðuð í hátt í 50 skýrslu­tökur síðan málið hófst.

Íris Helga Jónatansdóttir
Íris Helga Jón­atans­dóttir Íris Helga Jón­atans­dóttir neit­aði lang­flestum ákæru­lið­unum og bar ítrekað við minnis­leysi. Mynd: Golli

Íris Helga Jón­atans­dóttir upp­lýsti í Hér­aðs­dómi Reykja­ness að hún hefði verið boðuð að minnsta kosti 40–50 sinnum í skýrslu­tökur hjá lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­nesjum frá því málið hófst og að málið lægi þungt á henni. Íris Helga er ákærð fyrir umfangs­mikið umsát­ursein­elti í garð níu ein­stak­linga, en málin snúa að mestu um þrjá menn. Íris Helga neit­aði ítrekað fyrir aðild sína að lang­flestum ákæru­liðum, utan síma­skila­boða sem hún sendi á einn þol­and­ann. Hún bar oft­ast við minnis­leysi. Aðal­með­ferð fer nú fram í Hér­aðs­dómi Reykja­ness.

Grunar brotaþola um að dreifa miðum

Íris Helga er ákærð fyrir að hafa að mestu hrellt þrjá menn, en einnig fyrir rangar sak­ar­giftir, skjala­fals, hót­anir, æru­meið­andi aðdrótt­anir og barna­vernd­ar­laga­brot. Brotin bein­ast alls gegn níu brota­þolum, full­orðnum ein­stak­lingum og börnum þeirra. Ákæru­skjalið taldi 17 blað­síður og voru ákæru­lið­irnir 68 tals­ins. Allir ákæru­lið­irnir í morgun sneru aðeins að einu pari.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár