Kappsigling eftir sjóslys

Sautján skip­verjar eru í sjávar­háska.

Fiskiskip og björgunar­skip austur af landinu keppast nú um að ná á vettvang sjóslyss, þar sem sautján manna áhöfn er í háska. Samhæfinga­miðstöð almanna­varna hefur verið virkjuð, en lítið er gefið uppi og engin tilkynning hefur verið send.

Ríkis­útvarpið hefur greint frá því að skipið geri út frá Raufar­höfn og að í áhöfn séu sautján skip­verjar.

Minnst klukku­stund virðist vera í að næsta skip komist á slysstað.

Þrjú björgunar­skip eru á leið á vettvang, Hafbjörg frá Neskaups­stað, Svein­björn frá Vopna­firði og Gunnbjörg frá Raufar­höfn. Næst vettvangi eru þó Svanur RE. Harðbakur, Skinney og Vestmannaey stefna einnig að slysstað.

Ölduhæð er hátt í fimm metrar á svæðinu.

Landhelgis­gæslan boðar tilkynningu síðar í kvöld.

Flugvél Landhelgis­gæslunnar nálgast svæðið.

Kort
Kortagrunnur: © OpenStreetMap
Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár