Páfinn óttast um loftslagið

Loftslags­viðræðum á COP31 lauk án samkomu­lags um jarðefna­eldsneyti og fjár­mögnun. Páfinn segir skort á skýrum skuld­bindingum áhyggju­efni.

Páfinn talar til fólksins
Páfinn talar til fólks­ins Leó páfi XIV heilsar við kom­una á viku­legan áheyrn­ar­fund í Vatík­an­inu. Hann segir áhyggju­efni að COP31 hafi lokið án skýrra skuld­bind­inga um aðgerðir í lofts­lags­málum. Mynd: ALBERTO PIZZOLI / AFP

Leó páfi XIV sagði í dag að það væri „áhyggju­efni“ að loftslags­viðræður í Tyrklandi hefðu farið út um þúfur í síðustu viku. „Loftslags­kreppan ... hefur áhrif á líf milljóna manna,“ bætti hann við.

„Þegar öfga­kenndir atburðir í nátt­úrunni sem tengjast loftslags­kreppunni verða sífellt tíðari er áhyggju­efni að COP31 lauk án þess að alþjóða­samfélagið tæki á sig skýrar skuld­bindingar um að bregðast við henni af alvöru og ábyrgð,“ sagði páfinn eftir vikulegan áheyrnar­fund sinn í Vatíkaninu.

Viðræðunum á COP31 lauk á sunnudag án þess að ríkin næðu samkomu­lagi um jarðefna­eldsneyti, fjár­mögnun, vísindi og tækni til að fjarlægja kolefni.

Leó páfi hefur ítrekað lagt áherslu á nauðsyn þess að vernda náttúruna og byggt þar á tímamóta­yfirlýsingu forvera síns, Frans páfa, um umhverfismál. Í henni voru tengsl notkunar jarðefna­eldsneytis og loftslags­breytinga skýrt sett fram.

Páfinn, sem er Bandaríkja­maður, hefur haldið því fram að hlýnun jarðar sé ekki aðeins …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár