Sænska útlendingastofnunin sagði í dag að hún stöðvaði tímabundið brottvísanir sumra ungmenna sem komu til landsins sem börn með foreldrum sínum sem sóttu um hæli.
Stjórnvöld viðurkenndu að gallar væru á kerfinu eftir að fjölmiðlar og mannréttindasamtök vöktu athygli á nokkrum málum þar sem ungt fólk, sem hafði búið árum saman í Svíþjóð, átti yfir höfði sér brottvísun þótt fjölskyldur þess fengju að vera áfram.
Innflytjendamál hafa verið umdeild í Svíþjóð frá því að mikill fjöldi hælisleitenda kom til landsins árið 2015 og reglurnar voru hertar verulega.
Útlendingastofnunin sagði í dag að þetta varðaði fólk yfir 18 ára aldri sem áður hafði dvalið löglega í landinu með fjölskyldum sínum en verið synjað um dvalarleyfi eftir 20. júlí 2021.
„Þetta er alveg sérstök undantekning og ekki eitthvað sem almennt má búast við af okkur í tengslum við lagabreytingar. Við ætlum heldur ekki að endurtaka þetta ef …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir