Borgarstjóri stærstu borgar Nýja-Sjálands sagði að lýðræðið væri „liðin tíð“ og kominn tími til að prófa annað stjórnarfar. Um leið fór hann lofsamlegum orðum um eins flokks kerfið í Kína.
Wayne Brown, borgarstjóri Auckland, sagði fréttamiðlinum Stuff að hann hefði fylgst með nýafstöðnum kosningum á Nýja-Sjálandi í ferð til kínversku stórborgarinnar Guangzhou.
„Ég veit ekki hvað er að gerast á Nýja-Sjálandi,“ sagði hann í viðtalinu sem birtist í gær.
„Þetta er óskiljanlegt kerfi ... og lítið á kosningarnar í Bandaríkjunum ... þær skiluðu af sér ríkisstjórn sem er svo gott sem óstarfhæf. Í Evrópu hafa ekki verið haldnar almennilegar kosningar árum saman.“
„Lýðræðið er liðin tíð. Það er í raun kominn tími til að prófa eitthvað annað,“ bætti hann við.
Kosið var á Nýja-Sjálandi fyrr …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

















































Athugasemdir