Fiskveiðiskipið Jökull ÞH 299 hafði þrívegis lent í óhöppum frá 2022 áður en það sökk í gærkvöldi. Annars vegar strandaði skipið þar sem það var að fara frá bryggju á Raufarhöfn, svo strandaði það aftur við keimlíkar aðstæður fjórum mánuðum síðar.
Eldur kviknaði í skipinu árið 2023 en skipverjar slökktu sjálfi eldinn. Þá var skipið um 60 sjómílur norðaustur af Horni en atvikið var ekki tilkynnt þrátt fyrir lögbundna tilkynningaskyldu.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa fjallaði í tvö skipti um atvikin sem áttu sér stað, en engin skýrsla var gerð um atvikið í Húsavíkurhöfn. Skipið var í eigu útgerðarinnar GPG Seafood.
Vanmat á aðstæðum
Í lýsingu rannsóknarnefndarinnar kom fram að skipið lá með bakborðshliðina að Fiskiðjubryggjunni og þurfti að snúa því í gagnstæða stefnu til að sigla út úr höfninni þegar það var að leggja til veiða árið 2022.
Svo segir í skýrslunni: „Bakkað var í afturspring …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir