Sonur minn greindist með bráðahvítblæði

Yngvi Ómar Sig­rún­ar­son segir að það hafi breytt sýn sinni á lífið að takast á við veik­indi son­ar­ins.

Breytt sýn
Breytt sýn Yngvi Ómar segir það að vera næstum því búinn að missa eina barnið sitt hafi sett lífið í annað sam­hengi.

„Sonur minn greind­ist með bráða­hvít­blæði sum­arið 2017, þá 16 ára gam­all. Þetta var rosa­leg bar­átta af því að það áttu sér stað mis­tök í ferl­inu. Settur var í hann lyfja­brunnur, eins og krabba­meins­sjúk­lingar fá, og lyfja­gjöfin var alltaf að stoppa í fyrstu með­ferð­inni og tók því átta tíma en ekki fjóra. Ég fór til lækn­anna eftir þetta og spurði hvort það væri ekki eitt­hvað að þessum lyfja­brunni en þeir sögðu svo ekki vera. 

Hann fór í aðra stutta lyfja­gjöf nokkrum dögum seinna og það sama gerð­ist. Þeir próf­uðu meðal ann­ars stærri nálar, en þetta var alltaf að stoppa. 

Sonur minn fór síðan í aðal­krabba­meinslyfja­gjöf­ina og þetta gerð­ist þá líka og í stað þess að fá lyfin jafnt yfir 23 tíma þá fékk hann stærsta skammt­inn í lokin.

Í kjöl­farið fékk hann gríð­ar­lega eitrun og lá fár­veikur í þrjár til fjórar vikur. Þá var farið með hann í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár