Heill heimur í íslenskum fornbréfum

Lára Magn­ús­ar­dóttir, doktor í sagn­fræði, byrj­aði að leita í Íslenska forn­bréfa­safn­inu á náms­ár­unum sínum og hefur ekki hætt því síðan.

„Ég hef nú lifað þannig lífi að það hafa orðið miklar svipt­ingar og ýmis­legt sem hefur breytt lífi mínu. Mig langar samt að segja að það breytti lífi mínu að kom­ast í Íslenska forn­bréfa­safnið.

Ég er sagn­fræð­ingur og þegar ég var í námi þá fór ég að leita að hlutum í forn­bréfa­safn­inu. Og ég er bara enn þá að því. Þetta er mitt aðal­á­huga­mál og það eina sem ég geri, að lesa gamlar heim­ildir um Íslands­sögu sem Íslend­ingar hafa hætt að telja sem hluta af bók­mennta­arf­inum. En þetta eru dómar og lög, það sem var skráð á Alþingi og alls konar skjöl um hitt og þetta sem var að ger­ast.

Þetta er bara heill heimur, Íslands­sagan, tím­inn frá því Íslend­ingar gengu Nor­egs­kon­ungi á hönd og kirkj­unni og síðan áfram. Ég hef líka verið að lesa Alþing­is­bæk­urnar sem tóku við.

Þetta breytti lífi mínu og ég er enn …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár