Banaslys varð á mótum Suðurstrandarvegar og Krýsuvíkurvegar í gærkvöldi þegar fólksbíll og vörubíll rákust saman. Eftir áreksturinn kviknaði í fólksbílnum. Ökumaður bílsins lést. Hann var einn í bifreiðinni.
„Strax varð ljóst á vettvangi að um alvarlegt umferðarslys væri að ræða milli vörubifreiðar og fólksbifreiðar en við áreksturinn kviknaði í fólksbifreiðinni,“ sagði í tilkynningu Lögreglunnar á Suðurnesjum í gær.
Í svari Lögreglunnar á Suðurnesjum við fyrirspurn Heimildarinnar kemur fram að ekki var um rafmagnsbifreið að ræða. Þá verði ekki nánari upplýsingar veittar í bili.

Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir