Ýkjur væri að segja að flóðhestar og fílar séu óvinir úti í náttúrunni. Þær stóru skepnur hafa yfirleitt lítið hvor af annarri að sælda enda eru lifnaðarhættir þeirra ólíkir. Fílar háma í sig laufblöð, ávexti og annan gróður á landi uppi en flóðhestar svamla í ám og vötnum og éta sef. Þær hittast helst þegar fílar koma niður að vatni til að slökkva þorsta sinn og sneiða þá yfirleitt vandlega hvor frá annarri. En ein hjartnæmasta dýrafréttin frá árinu 2026 snýst um mjög óvænta vináttu tveggja ungra dýra af þessum tegundum.
Þann 2. maí 2026 barst starfsmönnum dýraverndarstofnunarinnar í Keníu tilkynning um að flóðhestaungi hefði fundist við Oloiden-vatn skammt frá bænum Naivasha. Unginn var aðeins nokkurra daga gamall og hnipraði sig upp að dauðri móður sinni. Hann rak öðru hverju trýnið í hana og reyndi að vekja hana en hún hafði þá verið dauð í að minnsta kosti sólarhring. Af áverkum á líkama móðurinnar að dæma hafði hún líklega fallið í átökum við annan flóðhest, hugsanlega þegar hún varði ungann sinn.
Geðvondir karlar!
Flóðhestar eiga til að berjast af mikilli hörku hver við annan og flóðhestartarfar munu vera einhver geðverstu dýr sem um getur.

Unginn fékk nafnið Bumpy og var fyrst fluttur til Naíróbí en síðan með þyrlu til Kaluku í suðurhluta Keníu, þar sem dýraverndarsamtökin Sheldrick Wildlife Trust reka uppeldisstöð fyrir munaðarlaus villt dýr. Þar hefur Bumpy verið síðan. Umsjónarmenn hans, þeir Festus og Jackson, verja stórum hluta dagsins með honum og eyða drjúgum tíma ofan í sundlaug, sem unginn hefur út af fyrir sig.
Buslar í sundlauginni
Bumpy er mjög hændur að mönnum, eltir þá Festus og Jackson hvert fótmál og gefur frá sér margvísleg og furðu fjölbreytt hljóð. Hann er mikið fyrir að sýna listir sínar í vatninu, veltir sér í hringi, tekur dýfur og lætur sig fljóta á bakinu með fæturna upp úr vatninu, ekki ósvipað og otur.
Á uppeldisstöðinni er annar munaðarlaus flóðhestur sem heitir Musumbi og er um hálfu öðru ári eldri en Bumpy. Starfsmenn gættu þess frá upphafi að hvor hefði sína sundlaug enda vilja flóðhestar frá ungra aldri helga sér svæði sem aðrir mega ekki koma nærri. Musumbi sýndi Bumpy fyrst í stað sáralítinn áhuga en smám saman hefur dregið úr fálæti hans og stinga þeir nú stundum saman nefjum.
Á vini af mörgum tegundum
Bumpy hefur hins vegar eignast ýmsa vini af öðrum dýrategundum. Þrír afrískir buffalar, Gruff, Bibi og Moshi, sækja gjarnan í návist hans, einkum Gruff. Þá koma gíraffarnir Pips og Twiggy iðulega að sundlaug Bumpys og fylgjast með buslugangi hans.
Mesta athygli hefur þó vakið vinátta Bumpy og fílakvígunnar Wangalla. Henni var bjargað í byrjun nóvember 2025, þegar hún fannst innan um sebrahesta í Tsavo-þjóðgarðinum, tæplega vikugömul. Ekki er vitað hvað varð um móður hennar. Wangalla var lengi veikburða og þurfti mikla umönnun fyrstu mánuðina.
Forðaði sér í sundlaugina
Wangalla hefur tekið sér eldri fílsunga, Korbessu, til fyrirmyndar og virðist umgangast Bumpy eins og yngra systkini. Þau hittast gjarnan snemma á morgnana og aftur undir kvöld en sinna hvort sínu yfir daginn. Wangalla strýkur Bumpy með rananum og eitt sinn reyndi hún að ausa yfir hann rauðri mold, eins og fílar gera gjarnan hver við annan og er vináttuvottur.
Bumpy kunni reyndar lítt að meta það og forðaði sér út í sundlaugina.
Vináttan verður varla ævilöng
Bumpy er nú tæplega sjö mánaða gamall. Umhverfis uppeldisstöðina eru umfangsmikil náttúruverndarsvæði og þar rennur áin Athi, sem er vatnsmikil árið um kring og heimkynni nokkurra flóðhestahópa. Vonast starfsmenn til þess að Bumpy geti gengið til liðs við einhvern þeirra þegar hann hefur aldur og þroska til. Þangað til fær hann að alast upp innan um menn og ýmsar aðrar dýrategundir í Kaluku.
Það er svo allra nýjast af Bumpy og Wangalla að frétta að bæði dýrin þrífast bráðvel og vinátta þeirra hefur haldist hin fegursta þótt þau sinni líka hvort sínu og ennfremur öðrum vinum sínum.
Umönnunarmenn dýranna búast þó ekki við að vinátta flóðhestsins og fílsins endist ævilangt. Eftir því sem þau eldast munu ólíkir lífshættir og eðlishvatir væntanlega skilja þau að. Enn eiga þau þó eftir að verja nokkrum árum saman á uppeldisstöðinni áður en hvort um sig verður tilbúið til að lifa sjálfstæðu lífi í náttúrunni.
Svo gæti Bumby náttúrlega orðið geðvondur með árunum þótt enn sé fátt sem bendi til þess.

Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir