Gagnrýnir að aðeins ein björgunarþyrla hafi verið tiltæk

Sigurður Ásgeirsson, þyrlu­flugmaður hjá Landhelgis­gæslunni, gagnrýnir að aðeins ein björgunar­þyrla hafi verið tiltæk þegar útkall barst vegna Jökuls ÞH. Hann segist „vona að reiðin með stöðu öryggis­mála á Íslandi og fögru fyrir­heitin sem nú verða básunuð lifi fram yfir kaffitíma næst­komandi sunnudags“.

Björgunarþyrlurnar
Björg­un­ar­þyrlurnar Sigurður Ásgeirs­son segir tvær af þremur þyrlum Land­helg­is­gæsl­unnar hafa verið bil­aðar þegar bjarga þurfti skip­verjum Jökuls ÞA. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sigurður Ásgeirsson, þyrlu­flugmaður hjá Landhelgis­gæslunni, gagnrýnir harðlega að aðeins ein björgunar­þyrla hafi verið tiltæk á landinu í gær. Hann er hluti af þyrlu­sveit Gæslunnar sem beið á Egilsstaða­flugvelli í gærkvöldi, tilbúinn að taka við af þeirri sveit sem send var langt út á sjó til að bjarga skip­verjunum sautján sem voru um borð í Jökli ÞA þegar skipið sökk.

Tvær af þremur þyrlum Gæslunnar eru bilaðar í Reykjavík og var því aðeins ein sveit sem gat sinnt útkallinu.

„Það virðist vera hluti af starfs­lýsingu þeirra sem starfa við öryggismál á Íslandi hvort sem það er landhelgis­gæsla, lögregla, slökkvilið eða aðrir að sýna fulla meðvirkni með því getu og áhuga­leysi sem þessum málum hefur verið sýnt á síðustu áratugum. Það má ekki upplýsa hversu ömurleg staðan er á þessum málum á Íslandi,“ skrifar hann á Facebook.

„Að þessu sinni var einungis ein björgunar­þyrla tiltæk á Íslandi og hún …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár