Hvenær urðu hundar hundar?

Jóla­dagatal dýranna – 29 dagar til jóla Niður­stöður hunda­rannsókna á árinu 2026 sýna að ólíkar hunda­tegundir hafa verið farnar að þróast mun fyrr en áður var talið

Egifskir hundar
Egifskir hundar

Ef fornleifafræðingar framtíðarinnar rekast einhvern tíma á hundakirkjugarð munu þeir eiga erfitt með að trúa því að allar leifarnar sem þeir finna séu ein og sama dýrategundin. Hvers konar rugl er það að örlítill Chihuahua-hvutti skuli eiga heita af sömu tegund og hinn tröllaukni stórskorni Stór-Dani?

Hin mikla fjöl­breytni í útliti hunda er vitaskuld afleiðing af mjög mark­vissri ræktun. Núorðið eru hunda­ræktendur fyrst og fremst að leika sér að því að rækta upp tiltekið útlits­einkenni, sem þeir telja eftirsóknar­verð, en upphaf­lega er hunda­ræktun til marks um hve hundar komu hinum fyrstu húsbændum sínum að marg­víslegum og ólíkum notum.

En hvenær datt manninum fyrst í hug að rækta ólíka hunda til ólíkra starfa? Hvenær komst hann að raun um að sumir hundar væru vel fallnir til að elta uppi bráð, aðrir til að gæta híbýla hans og enn aðrir til að draga sleða? Þrjár vísinda­rannsóknir, sem birtar hafa verið á síðustu tólf mánuðum, benda til þess að sú saga sé miklu lengri en margir hafa talið.

Hundurinn var fyrsta dýrið sem maðurinn tamdi og sambúð þessara tveggja tegunda hófst löngu áður en mannkynið tók að stunda akuryrkju og kvik­fjárrækt. Í mars 2026 birtust í vísinda­ritinu Nature niður­stöður umfangs­mikilla erfða­rannsókna á fornum hundum og úlfum. Meðal þeirra dýra sem rannsökuð voru var hundur sem uppi var fyrir 14.200 árum og leifar fundust af í Kesslerloch-hellinum í Sviss.

Allir hundar náskyldir?

Í ljós kom að svissneski hundurinn var erfða­fræðilega skyldari hundum sem síðar lifðu í Evrópu en hundum í Asíu. Maður skyldi ætla að fyrir 14.200 árum hafi allir hundar heimsins verið náskyldir en svo reyndist sem sé ekki vera. Þegar undir lok síðasta jökulskeiðs voru bersýni­lega orðnir til aðgreindir hunda­stofnar í heiminum. Hundar höfðu þá fylgt hópum manna um víðáttu­mikil landsvæði og tekið að þróast hver með sínum hætti.

En voru hundarnir líka orðnir ólíkir í útliti?

Í nóvember 2025 birtist í vísinda­ritinu Science rannsókn þar sem vísinda­menn höfðu gert nákvæmar þrívíddar­mælingar á 643 höfuð­kúpum hunda og úlfa frá ýmsum tímum síðustu 50.000 ára. Þeir komust að raun um að fyrir 11.000 árum var þegar orðinn umtalsverður munur á stærð og lögun höfuð­kúpna hunda.

Minni árásargirni

Sumir voru með langt og mjótt trýni, aðrir með styttra og breiðara. Hundurinn hafði sem sagt snemma tekið að sýna þann fjöl­breytileika í líkams­byggingu sem nú er eitt helsta sérkenni tegundarinnar.

En hvað um skapgerð hundanna og hæfileika?

Í október 2026 birtist í vísinda­ritinu Molecular Biology and Evolution rannsókn þar sem leitast var við að rekja þróun 36 mismun­andi hegðunar­eiginleika hunda með athugun á erfðaefni þeirra. Vísinda­mennirnir fundu merki um að þegar snemma í sögu hundsins hefði náttúrulegt (eða „mannstýrt“) úrval stuðlað að minni árásar­girni gagnvart eigendum, minni hræðslu hundanna (til dæmis við mannfólk) og aukinni hæfni til að taka við þjálfun.

Mismunandi hæfileikar

En sérstak­lega athyglis­vert var að vísinda­mennirnir fundu líka vísbendingar um forna sérhæfingu hunda­stofna með tilliti til veiði­eiginleika. Veiðimenn ísaldar kunna því þegar að hafa gert sér grein fyrir að hundar voru misjafnlega hæfileika­ríkir og því stuðlað að fjölgun þeirra sem best nýttust við tiltekin verkefni.

Tennur Kesslerloch-hunds­ins.

Ekki er þar með sagt að menn hafi stundað skipulegar kynbætur í nútíma­skilningi, líkt og hunda­ræktendur gera. Það kann einfald­lega að hafa gerst að menn hafi haldið sérstak­lega upp á duglega veiði­hunda, alið önn fyrir afkvæmum þeirra og þannig smám saman mótað hunda sem hentuðu þörfum þeirra.

Sérhæfðir sleðahundar

Og fyrir um 9.500 árum virðast þegar hafa verið komnir fram sérhæfðir sleða­hundar í Síberíu. Á myndum frá Egifta­landi til forna má síðan sjá hunda af ýmsum gerðum, meðal annars rennilega og háfætta veiði­hunda.

Þegar á steinöld virðist um helmingur þeirrar fjöl­breytni í lögun höfuð­kúpna sem einkennir nútíma­hunda hafa verið kominn fram.

Flest þeirra hunda­kynja sem nú eru viðurkennd urðu hins vegar til við skipulega ræktun fyrir mjög skömmu síðan, eða á síðustu tveimur öldum. Þegar Bretar Viktoríu­tímans tóku að efna til hunda­sýninga og setja nákvæmar reglur um hvernig hundar skyldu líta út voru þeir þó í raun að halda áfram verki sem löngu liðnir forfeður þeirra kunna að hafa hafið við varð­eldana fyrir ævalöngu.

Hlaupagikkur

Það er að segja einhver veitti því athygli að einn hvolpurinn var lang­fljótastur að hlaupa á eftir hinum en annar virtist mun athugulli og taka betur eftir aðsteðjandi hættu. Og maðurinn við eldana kann að hafa hugsað sem sér:

„Þetta eru dugnaðar­hvolpar og best að leyfa þeim báðum að lifa. Hlaupa­gikkinn tek ég með mér á veiðar á morgun og prófa að siga honum á héra. Hinn getur verið hér heima á meðan og látið vita ef gaupa nálgast.“

Þannig kann að hafa hafist þróun sem leiddi til þess að á svo og svo löngum tíma voru orðin til kyn annars vegar veiði­hunda og varðhunda hins vegar. Og þarna við varð­eldana á ísöld hafin sú þróun sem að lokum gat af sér jafnt Chihuahua-hvuttann sem hinn tröll­aukna Stór-Dana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár