Ísrael hindrar fæðingar á Gaza

Amnesty International segir að aðgerðir Ísraels hafi torveldað meðgöngu- og fæðingar­þjónustu og hvetur til rann­sóknar „hópmorði“.

Gaza í dag
Gaza í dag Kona syrgir fjóra úr fjöl­skyldu Abu al-Ouf á Al-Shifa-sjúkra­hús­inu í Gasaborg í dag. Þau lét­ust í loft­árás Ísraels. Mynd: OMAR AL-QATTAA / AFP

Amnesty International sakaði Ísrael í dag um að hafa gripið til aðgerða sem komu í veg fyrir fæðingar á Gaza. Framkvæmda­stjóri samtak­anna hvatti Alþjóð­lega sakamála­dómstólinn (ICC) til að rannsaka hvort „hópmorð hafi verið framið“.

Í skýrslu sem birt var í dag, á alþjóð­legum degi gegn ofbeldi gagnvart konum, dregur Amnesty upp dökka mynd af áhrifum stríðsins, sem hófst í október 2023, á líkamlega og andlega heilsu kvenna á Gaza og frjósemi þeirra.

„Aðgerðir Ísraels hafa síðan þá hindrað aðgang að frjósemis­meðferð og stuðlað að fylgi­kvillum á meðgöngu, þar á meðal fóstur­láti og andvana fæðingu,“ sagði Agnes Callamard, framkvæmda­stjóri Amnesty International, á blaðamanna­fundi.

Í skýrslunni er lýst „alvarlegum áhyggjum af því að þetta hafi verið ætlunin“, en jafnframt viðurkennt að samtökin geti „ekki fullyrt það með vissu“.

COGAT, stofnun innan ísraelska varnarmála­ráðuneytisins sem fer með borgaraleg málefni á palestínsku svæðunum, sakaði Amnesty um að „enduróma rangar …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár