Homo erectus fær uppreist æru

Rann­sóknir sýna að hinn upp­rétti maður, homo erectus, bjó yfir meiri þraut­seigju en áður var talið og ferð­að­ist langar leiðir.

Fornmaður á safni
Forn­maður á safni Líkan af Homo erectus á Þjóð­minja­safni for­sög­unnar í Eyzies-de-Tayac í Frakk­landi. Nýjar rann­sóknir benda til að teg­undin hafi aðlag­ast lífi í þéttum skógum Suður-Kína. Mynd: PIERRE ANDRIEU / AFP

Homo erectus, fjar­skyldur ætt­ingi okkar, aðlag­að­ist lífi í þéttum skógum í Suður-Kína. Þetta kemur fram í tveimur rann­sóknum sem birt­ust í dag og ganga gegn ríkj­andi kenn­ingum um hvernig teg­undin dó út.

Þessir for­feður okkar lifðu af í nær tvær millj­ónir ára, mun lengur en Homo sapi­ens. Sú teg­und er sú eina af manna­teg­und­unum sem enn lifir og hefur verið til í aðeins um 300.000 ár.

Þessir forn­menn flutt­ust frá grasi vöxnum gresjum Afríku, þvert yfir Asíu og til opinna svæða og gis­inna skóga á Jövu. Þar hafa fund­ist yngstu stein­gerv­ingar teg­und­ar­innar, sem eru 108.000 ára.

Hingað til töldu vís­inda­menn að teg­undin hefði horfið úr Asíu vegna þess að hún gat ekki aðlag­ast þegar umhverfi hennar tók að breyt­ast í hita­belt­is­regn­skóg.

„Ríkjandi við­horf um forn­menn á pleistósentíma í Austur- og Suð­austur-Asíu hefur verið að þeir, að Homo sapi­ens und­an­skildum, hafi ekki getað nýtt sér skóg­lendi,“ …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár