Kallaður morðingi eftir slysið

Fimm dögum eftir að Haraldur Már Har­alds­son fékk bíl­próf fór hann á rúnt­inn með besta vini sínum, þar sem þeir hittu félaga sína á nýjum sport­bíl. Úr varð kappakstur sem end­aði með skelf­ingu. Næstu ára­tugi lifði Haraldur í sorg, sekt­ar­kennd og skömm. Nú segir hann sögu sína í von um að ná til ann­arra.

Segir sögu sína
Segir sögu sína Haraldur Már Har­alds­son segir frá slys­inu sem kost­aði besta vin hans lífið og árunum sem fylgdu. Mynd: Golli

„Orð geta drepið en það getur þögnin líka gert,“ segir Haraldur Már Har­alds­son, „þegar þú reynir að halda inni öllum sárs­auk­anum.“ Sárs­auk­inn finnur alltaf sinn far­veg. Ungur var hann far­inn að sækja í áhættu­hegðun. Stundum þarf ekki nema eitt augna­blik til og ekk­ert verður aftur samt. Haraldur var sautján ára þegar hann var eitt­hvað að met­ast við vini sína, með kappakstri. Þeir voru tveir í bílnum þegar hann missti stjórn­ina. Besti vinur hans lifði ekki af.

Eftir stóð Haraldur Már fullur sjálfs­hat­urs og skammar. „Morðingi“, var kallað á eftir honum og annað álíka sárt. Orðin stungu, vegna þess að þau stað­festu það sem hann hugs­aði sjálfur. Leiðin þaðan var löng en með mik­illi vinnu tókst honum á end­anum að rísa aftur upp og ná undir sig fót­unum.

Æska í skugga óöryggis

Haraldur ólst upp á Akranesi, þar sem hann bjó með for­eldrum sínum og þremur systk­inum. Þó …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár