„Enn sem komið er“ ekkert sem bendir til árásar

Allar brott­farir flugs í Banda­ríkj­unum hafa verið stöðv­aðar vegna fjar­skipta­bil­unar. Heima­varn­ar­ráðu­neytið segir ekk­ert benda til árásar.

Flug stöðvað
Flug stöðvað Fjar­skipta­bil­unin olli töfum og óvissu meðal far­þega í Banda­ríkj­unum. Myndin sýnir far­þega­flug­vélar en er ekki frá atvik­inu. Mynd: CHARLY TRIBALLEAU / AFP

Banda­rísk flug­mála­yf­ir­völd fyr­ir­skip­uðu í dag, sem er afar sjald­gæft, að allt brott­flug um landið yrði stöðvað vegna umfangs­mik­illar fjar­skipta­bil­unar. Heima­varn­ar­ráðu­neytið sagði að bil­unin virt­ist ekki stafa af „ill­vilj­aðri árás“.

Stöðv­unin olli sam­stundis ringul­reið meðal far­þega. Á brott­far­ar­spjöldum margra flug­valla virt­ist flug vera sam­kvæmt áætlun þótt far­þegar kæmust ekki um borð.

„Flug­mála­stofnun Banda­ríkj­anna (FAA) hefur stöðvað allt brott­flug frá flug­völlum lands­ins vegna fjar­skipta­vanda sem hefur áhrif á allar flug­stjórn­ar­mið­stöðvar fyrir flug á milli flug­valla,“ sagði stofn­unin. „Tækni­menn FAA rann­saka málið.“

Í síð­ari færslu á X lýsti stofn­unin vand­anum sem „tíma­bund­inni fjar­skipta­bilun“ og sagð­ist grípa til aðgerð­anna „af fyllstu varúð“.

Brottflug stöðvað
Brott­flug stöðvaðFlug­mála­yf­ir­völd í Banda­ríkj­unum stöðv­uðu allt brott­flug um landið vegna fjar­skipta­bil­unar. Myndin er af Stewart-flug­velli.

Markwayne Mullin, ráð­herra heima­varn­ar­mála, sagði ekk­ert benda til ógnar við Banda­ríkin og bætti við: „þetta er ekki önnur árás eins og 11. sept­em­ber“.

„Enn sem komið er bendir ekk­ert …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár