Umdeild olíuvinnsluleyfi ógild vegna loftslagsáhrifa

Hæsti­réttur Noregs segir að meta verði losun þegar olían er brennd áður en áætl­anir um vinnslu á þremur svæðum í Norð­ur­sjó eru sam­þykktar. Þótt sam­þykktir stjórn­valda hafi verið felldar úr gildi falla leyfi olíu­fé­lag­anna ekki sjálf­krafa niður.

Á Norðursjó
Á Norð­ur­sjó Samkvæmt nið­ur­stöðu Hæsta­réttar Noregs þarf að meta losun við bruna olíu áður en áætl­anir um vinnslu eru sam­þykktar. Mynd: Shutterstock

Hæsti­réttur Noregs úrskurð­aði í dag að þrjú leyfi sem stjórn­völd veittu til olíu­vinnslu í Norð­ur­sjó væru ógild þar sem ekki hefði verið tekið nægi­legt til­lit til áhrifa þeirra á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Dóm­stóll­inn féllst á rök lofts­lags­vernd­ar­sinna sem höfðu dregið gildi leyf­anna í efa. Þeir héldu því fram að í mati á umhverf­is­á­hrifum hefði ekki verið tekið til­lit til los­unar við bruna olí­unnar eftir að hún væri unnin.

Lofts­lags­vernd­ar­sinn­arnir höfðu áður haft sigur í málum fyrir tveimur dóm­stólum á lægra dóm­stigi.

Hæsti­réttur úrskurð­aði að áætl­anir um vinnslu og stækkun væru „ógildar vegna ann­marka á máls­með­ferð“. Dóm­stóll­inn benti á að þótt losun hefði verið metin hefði matið aðeins náð til svo­kall­aðrar los­unar við vinnslu, en ekki þeirrar „los­unar við bruna“ sem kæmi síðar.

Að sögn dóm­stóls­ins verður „losun við bruna sem hlýst af olíu­vinnslu að sæta mati á umhverf­is­á­hrifum“ áður en áætlun er sam­þykkt.

Hæsti­réttur fjall­aði …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Þýðir þetta ekki í reynd að olíuvinnsla á Drekasvæðinu er útúr myndinni?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár