Trump, Xi og Pútín halda sögulegan fund

Fyrsti þrí­hliða fundur leið­toga Rúss­lands, Banda­ríkj­anna og Kína stað­festur.

Þríhliða fundur
Þríhliða fundur Donald Trump og Vladimír Pútín munu funda með Xi Jinping í Shenzhen í næstu viku. Mynd: AFP

Donald Trump, Vladimír Pútín og Xi Jinping munu hitt­ast í fyrsta sinn á þrí­hliða fundi leið­toga Banda­ríkj­anna, Rúss­lands og Kína á ráð­stefnu í Shenzhen í næstu viku, að því er Hvíta húsið greindi frá í gær.

Trump vill ræða fækkun kjarna­vopna á fund­inum á fimmtu­dag og hyggst einnig taka upp stríð sitt í Íran. Hann mun hins vegar ekki ræða stríð Rúss­lands í Úkraínu, að sögn banda­rískra emb­ætt­is­manna.

Leið­tog­arnir þrír munu hitt­ast sam­hliða leið­toga­fundi Efna­hags­sam­starfs Asíu- og Kyrra­hafs­ríkja (APEC) í borg­inni í sunn­an­verðu Kína, sagði Olivia Wales, tals­kona Hvíta húss­ins, við frétta­menn.

„For­set­inn hefur tekið skýrt fram að hann muni meðal ann­ars ræða fækkun kjarna­vopna í heim­inum. Trump for­seti telur útbreiðslu þeirra mjög hættu­lega,“ sagði Wales.

Í Evrópu hafa hins vegar verið uppi áhyggjur af afleið­ingum þess að leið­togar stór­veld­anna þriggja leggi saman á ráðin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rússland Pútíns

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár