Kína, Bandaríkin og Rússland sendu frá sér „friðaryfirlýsingu“ í dag að loknum fordæmalausum fundi leiðtoga ríkjanna í kínversku borginni Shenzhen.
Kínverskir ríkisfjölmiðlar og Kreml birtu sameiginlegu yfirlýsinguna fyrst. Hvíta húsið hefur enn ekki sent neitt frá sér.
Í yfirlýsingunni segir að forsetarnir Xi Jinping, Vladimír Pútín og Donald Trump hafi „átt ítarleg skoðanaskipti um stöðu alþjóðamála og skuldbundið sig til að standa vörð um stefnumótandi stöðugleika og alþjóðlegt öryggi“.
Ríkin „hyggjast auka framleiðslu og framboð á unnum olíuvörum“, segir enn fremur í yfirlýsingunni, þar sem „mikilvægi stöðugs orkuflæðis“ er áréttað.
Þar segir einnig að ríkin muni „eiga í viðræðum um að draga úr kjarnorkuáhættu og koma í veg fyrir útbreiðslu kjarnavopna“.
Í yfirlýsingunni er Alþjóðaglæpadómstóllinn gagnrýndur og sagt að hann og sambærilegar stofnanir „megi ekki misbeita lögsögu sinni“.
Bandaríkin hafa upp á síðkastið hótað dómstólnum og beitt dómara hans refsiaðgerðum, vegna óánægju með að …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir