Xi Jinping Kínaforseti sagði að „gera yrði allt sem unnt er til að koma í veg fyrir kjarnorkustríð“, að því er ríkisfjölmiðlar greindu frá í dag. Hann átti þá fund með forsetum Bandaríkjanna og Rússlands.
„Enginn getur unnið kjarnorkustríð og það má aldrei heyja slíkt stríð. Gera verður allt sem unnt er til að koma í veg fyrir kjarnorkustríð, standa við samninginn um bann við útbreiðslu kjarnavopna og viðhalda hernaðarlegum stöðugleika í heiminum,“ sagði Xi í ummælum sem kínverska fréttastofan Xinhua birti áður en hann ræddi við Donald Trump Bandaríkjaforseta og Vladimír Pútín Rússlandsforseta.
Bandaríkin, Rússland og Kína eru „í einstakri aðstöðu“ til að ræða fækkun kjarnavopna, sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti við upphaf viðræðna við forseta Kína og Rússlands í Shenzhen í dag.
„Bandaríkin, Rússland og Kína eru langöflugustu kjarnorkuveldi heims og því í einstakri aðstöðu til að ræða hvernig fækka megi kjarnavopnum í heiminum og draga …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
















































Athugasemdir