Hvað vilja þeir þrír?

Donald Trump, Vladimir Putin og Xi Jinping funda í Shenzhen um mál sem varða meðal ann­ars Úkraínu, kjarn­orku­vopn og Taívan.

Leiðtogarnir þrír
Leið­tog­arnir þrír Donald Trump heilsar Vladimir Putin fyrir fund for­set­anna í Shenzhen. Xi Jinping, for­seti Kína, stendur hjá. Mynd: IORI SAGISAWA / AFP

For­dæma­laus þrí­hliða leið­toga­fundur Kína, Rúss­lands og Banda­ríkj­anna mun skapa eft­ir­minni­legar myndir og valda óhug í Evrópu í þess­ari viku. For­set­arnir þrír koma þó til fund­ar­ins með afar ólíkar áherslur.

Donald Trump, Vladimir Putin og Xi Jinping munu funda á morgun í tengslum við leið­toga­fund Efna­hags­sam­starfs Asíu- og Kyrra­hafs­ríkja (APEC) í kín­versku borg­inni Shenzhen. Fund­ur­inn minnir á leið­toga­fund Banda­ríkj­anna, Bret­lands og Sov­ét­ríkj­anna í Jalta í febr­úar 1945, þar sem leið­togar „stór­veld­anna þriggja“ komu saman.

Á þeim fundi, sem hald­inn var nokkrum mán­uðum áður en síð­ari heims­styrj­öld­inni lauk, sömdu leið­togar Bret­lands, Sov­ét­ríkj­anna og Banda­ríkj­anna um skipt­ingu Evrópu að stríði loknu.

Evrópa á engan full­trúa í við­ræð­unum á morgun og mun fylgj­ast með þeim af var­færni. Bros og vina­leg hand­tök kunna einnig að vekja ugg í Úkraínu, eftir nærri fimm ára stríð við Rússland, og á Taívan, lýð­ræð­is­rík­inu á eyj­unni sem Kína telur hluta af yfir­ráða­svæði sínu.

Sér­fræð­ingar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið undanfarið ár