Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi í gær það sem hann kallaði „vopnavæðingu alþjóðalaga“. Hann sagði þau vera verkfæri valdaelítunnar og hótaði Alþjóðlega sakamáladómstólnum (ICC).
Rubio varaði dómstólinn við því að „vitna í lög við menn með sverð“. Hann sakaði dómstólinn, sem hefur aðsetur í Haag, um að reyna að framfylgja reglum sem Bandaríkin viðurkenna ekki.
Rubio lét þessi orð falla á National Lawyers Convention, ráðstefnu lögfræðinga á vegum Federalist Society, um mánuði eftir að Bandaríkin tilkynntu nýjar refsiaðgerðir gegn dómstólnum og hétu því að lama starfsemi hans.
Dómstóllinn sækir til saka fólk sem er sakað um alvarlegustu voðaverk. Hann kemur til kasta þegar réttarkerfi ríkja nægja ekki til að tryggja að þeir sem bera ábyrgð á slíkum verkum sæti ábyrgð.
Bandaríkin undirrituðu Rómarsamþykktina um stofnun dómstólsins en fullgiltu hana aldrei. Ísrael, Rússland og Kína eiga heldur ekki aðild að honum.
Rubio flutti aðalræðuna á …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir