Demókratar vinna í Alaska

Úrslitin tryggja demókrötum 56 sæti gegn 44 í öld­unga­deild­inni og styrkja stöðu þeirra gagn­vart stjórn Donalds Trump.

Sigur í Alaska
Sigur í Alaska Mary Peltola á kosn­inga­vöku í Anchorage. Hún vann öld­unga­deild­ar­sæti Alaska af sitj­andi þing­manni repúblik­ana, Dan S. Sullivan. Mynd: CHARLY TRIBALLEAU / AFP

Demókrat­inn Mary Peltola vann öld­unga­deild­ar­sæti Alaska í gær eftir hnífjafna kosn­ingu þar sem hún felldi sitj­andi þing­mann repúblik­ana, Dan S. Sullivan. Þetta sýna opin­berar atkvæða­tölur.

Peltola hlaut 50,12 pró­sent atkvæða. Með sigri hennar hafa demókratar 56 sæti gegn 44 í öld­unga­deild Banda­ríkja­þings. Þar með er síð­asta óút­kljáða kjöri þing­kosn­ing­anna lokið, en repúblikanar biðu ósigur víða um land og úrslitin eru skýr áfell­is­dómur yfir öðru kjör­tíma­bili Donald Trump Banda­ríkja­for­seta.

„Sem næsti öld­unga­deild­ar­þing­maður Alaska mun ég standa uppi í hár­inu á hverjum sem er, til þess að takast á við órétt­láta kerfið í Washington og ná árangri fyrir vinn­andi fjöl­skyldur í Alaska,“ sagði Peltola í yfir­lýs­ingu í gær­kvöld.

„Ég hef búið í Alaska alla ævi og helgað líf mitt þjón­ustu við ríkið. Enginn heiður er meiri en að njóta stuðn­ings íbúa Alaska í bar­átt­unni gegn græðgi stór­fyr­ir­tækja, fyrir lægri útgjöldum og fyrir því að setja Alaska í fyrsta sæti.“

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár