„Svona umfangsmiklar skipulagsbreytingar og fækkun starfsfólks kalla á að skoðað sé hverjir verða fyrir áhrifum og hvort þau séu mismunandi eftir kyni eða öðrum félagslegum áhrifaþáttum,“ segir Finnborg Salome Steinþórsdóttir, lektor í kynjafræði við Háskóla Íslands, um hópuppsagnirnar þrjár í Reykjavíkurborg undanfarna mánuði.

Í heildina misstu 122 manns störf sín, um 66 prósent þeirra voru konur og 34 prósent karlar. Í jafnréttisskimunum sem Reykjavíkurborg vann fyrir tvær af þremur hópuppsögnum var ekki talin þörf á jafnréttismati. Matið á meðal annars að tryggja réttindi kynjanna og annarra jaðarsettra hópa. Finnborg telur þó að ástæða hafi verið fyrir gerð ítarlegs jafnréttismats.
„Það þarf meðal annars að meta hvaða áhrif fækkunin getur haft á vinnuálag og starfsaðstæður þeirra sem eftir standa, sem og aðgengi að þjónustu og framkvæmd …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir