Ég vil byrja á að votta öllum þeim sem misstu ástvin og eiga um sárt að binda mína dýpstu samúð og votta virðingu mína og þakklæti til allra þeirra er lögðu hönd á plóg við þetta ótrúlega björgunarafrek. Þar fór fremst í flokki hin ótrúlega magnaða áhöfn sem var um borð í TF-Gró. Framganga þeirra var svo vaskleg að erlendir fjölmiðlar hafa talað um aðgerðina sem „sjálfsmorðsaðgerð“.
Það eru stór orð yfir ótrúlegt afrek. Afrek sem verðskuldar að vera í hávegum haft og lofað í alla staði. En hvað veldur því að jafn stórkostleg aðgerð sé lýst með svo óhugnanlegum orðum?
Boðað var til fréttamannafundar morguninn eftir þessa mögnuðustu björgunaraðgerð sem ég man eftir og leyfi mér að efast um að mér vísari og minnugari menn geti bent á annað eins afrek. Þar tekur Georg Lárusson forstjóri LHG til svars og segir að allar reglur hafi verið þverbrotnar þar sem ekki voru til aðrar bjargir til að koma þyrlunni til hjálpar ef henni hlekktist á. Leiða má að því líkum að við jafn erfiðar aðstæður og þarna voru til staðar geti óhapp vissulega orðið. En það stakk mig sem sjómann að heyra Georg tala um að áhöfn þyrlunnar hefði verið án allra bjarga og því í raun ekki mátt fara svona langt frá strandlínunni.
Þegar þyrlan var komin á svæðið voru fimm fiskiskip rétt ókomin á svæðið. Fimm fiskiskip sem á einni svipstundu hættu að vera fiskiskip og urðu bjargir. Þessi fimm fiskiskip voru mætt á vettvang á innan við klukkutíma eftir að þyrlan kom á svæðið. Í því samhengi má benda á að þyrlan var við erfiðar aðstæður þrjá klukkutíma að koma sér á slysstað. Má reikna með því að ef önnur þyrla hefði verið til taks hefði hún verið álíka lengi á leiðinni til að koma fyrri þyrlunni til aðstoðar hefði henni hlekkst á.
Þannig að þó að þessi fimm fiskiskip sem voru á fullri ferð að svæðinu, til að sinna þeirri skilyrðislausu skyldu allra sjófarenda að koma öðrum til hjálpar sem eru í nauð staddir, voru samkvæmt þessu ekki nægilegar bjargir fyrir þyrluna. Það eru samt sem áður þær bjargir sem við sjómenn stólum á. Enda birtist samstaðan þegar hætta steðjar að. Þá er ekkert sem kemur í veg fyrir að sjómenn geri allt sem í sínu valdi stendur til að koma öðrum til bjargar og í slíkum aðstæðum sér enginn eftir tíma sínum og atorku.
Þó að þyrlan og LHG séu vissulega með öflug björgunartæki og vel þjálfað fólk sem hefur gert ótrúlega hluti við virkilega erfiðar aðstæður þá kom einnig fram í svari Georgs að það væru í besta falli 65 prósenta líkur á að þær bjargir séu til staðar ef sjávarháski verður.
Þegar mín áhöfn er á sjó og þessar bjargir eru ekki til taks þá erum við í vinnunni, en þegar þyrlan fer út fyrir sitt öryggissvæði er það kallað „sjálfsmorðsaðgerð“. Það voru reyndar ekki orð Georgs, en unnin upp úr lýsingum hans og áherslu á að í raun ætti að áminna áhöfnina fyrir að leggja sig í þessa hættu. Sem vekur upp spurninguna: Af hverju er þín áhöfn svo dýrmæt að það ætti að áminna hana fyrir að setja sig í aðstæður sem þykir sjálfsagt að mín áhöfn sé í þegar hún er að störfum? Af hverju er þín áhöfn í sjálfsmorðsverkefni á meðan mín áhöfn er bara í vinnunni?
Höfundur er sjómaður til 35 ára
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir