Ein af skemmtilegustu og um leið óvæntustu dýrafréttum ársins sem nú er að líða birtist fyrst í vísindaritinu Current Biology í janúar. Þar sagði frá kúnni Veronica og hátterni hennar, en það kom vísindamönnum vægast sagt í opna skjöldu.
Veronica virtist í alla staði venjuleg kýr. Hún lifir friðsælu lífi á bændabýli nálægt Vínarborg, höfuðborg Austurríkis, og sinnir þar mjólkurframleiðslu eins og milljónir systra hennar um víða veröld.
Fyrir fáeinum misserum fór fólkið á bænum hins vegar að taka eftir óvenjulegu hátterni Veronicu. Kýr klæjar stundum eins og gerist og gerist og þó þær séu með hala, liðugan háls og langa tungu, þá eru ýmsir staðir á líkamanum sem þær ná ekki til og gera því að þola kláðann.
En það sætti Veronica sig ekki við.
Allt í einu kom í ljós að hún var farin að grípa prik af ýmsu tagi, aðallega gólfbursta sem hún náði í í fjósi sínu, og notaði þau til að klóra sér. Það sem meira var, hún virtist búin að úthugsa hvor efni bursta og prika hentaði best hverjum líkamshluta fyrir sig og hegðaði sér samkvæmt því.
Verkfæranotkun hennar var því ekki einhverjum tilviljunum háð.
Vísindamenn voru kallaðir á staðinn og þeir fylgdust með kúnni og komust að því að þetta var allt satt og rétt. Niðurstöðurnar voru síðan birtar í Current Biology.
Þessi frétt virðist kannski ekki stórmerkileg. Jú, vinaleg kýr lærir að klóra sér, gaman, já, en hvaða máli skiptir það?
Jú, það skiptir því máli að aldrei og hvergi hefur nokkurt spendýr verið „staðið að því“ að nota verkfæri með þessum hætti – sem krefst hugmyndar, undirbúnings, æfingar, samhæfingar hugar og líkama – nema simpansar ... og svo menn.
Er hann kominn tími til að líta kýrnar okkar í haganum öðrum augum en fyrr?
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir