Sánchez reynir að afstýra sigri hægrimanna á Spáni

Kannanir benda til að Þjóðar­flokkurinn fái flest þingsæti í kosningunum á sunnudag en gæti þurft stuðning yst til hægri til að mynda stjórn. Í nýlegum könnunum hefur forskotið á sósíal­ista þó minnkað.

Umdeildur
Umdeildur Sánchez er umdeildur heima fyrir og útlit fyrir að átta ára valda­tíð hans sé að ljúka. Mynd: JAIME REINA / AFP

Pedro Sánchez, forsætis­ráðherra Spánar og leiðtogi sósíal­ista, hvatti kjósendur á föstudag til að koma í veg fyrir að Spánn færi „aftur á bak“. Þá lauk kosninga­baráttunni fyrir þing­kosningar sem fara fram um helgina, þar sem búist er við sigri íhalds­manna og flokka yst til hægri.

Fylgst verður grannt með úrslitunum á sunnudag en kosningarnar á Spáni eru þær fyrstu í röð kosninga í Evrópu á næstu tólf mánuðum sem gætu breytt valda­hlutföllum innan Evrópu­sambandsins.

„Þessar kosn­ingar snú­ast um að færa Spán fram á við, ekki aftur á bak“
Pedro Sánchez
for­sæt­is­ráð­herra Spánar

Sánchez hefur á undan­förnum árum látið æ meira að sér kveða á alþjóða­vettvangi og er einn af þekktustu leiðtogum vinstri­manna í heiminum. Heima fyrir eru skiptar skoðanir á honum og gætu átta ár hans í embætti forsætis­ráðherra nú verið á enda.

Í skoðana­könnunum hefur Sánchez jafnan mælst með minna fylgi en Þjóðar­flokkurinn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár