Árvakur og Sýn fá hvort um sig tæpar 110 milljónir króna í almennan rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla, samkvæmt tilkynningu Fjölmiðlanefndar um úthlutun ríkisstyrkja.
Sex félög fá lægri almennan rekstrarstuðning en í fyrra. Lækkunin er mest í krónum hjá Sameinaða útgáfufélaginu, um 14 milljónir, en hlutfallslega hjá tímaritaútgáfuni Birtingi, um 67%. Árvakur og Sýn fá hvort um 5,9 milljónum meira, fyrir utan fyrirhugaða viðbótarstyrki upp á 60 milljónir króna.
Alls skiptast 545,6 milljónir króna milli 25 fjölmiðlaveitna samkvæmt úthlutun sem Fjölmiðlanefnd birti í dag. Í fyrra fengu 28 fjölmiðlaveitur samtals 544 milljónir króna. Fjárhæðin sem rennur til styrkþega hækkar því um rúmlega 1,5 milljónir króna, eða 0,3 prósent að nafnvirði.
Árvakur og Sýn fá hvort 109,8 milljónir króna, samanborið við 103,9 milljónir í fyrra. Styrkur hvors félags hækkar um 5,9 milljónir, eða 5,7 prósent. Samanlagt fá félögin tvö 40,3 prósent þeirrar fjárhæðar sem nú er úthlutað.
…
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.










































Athugasemdir