Samningur Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns Flokks fólksins, við unga útgerðarkonu um yfirtöku á smábátaútgerð hans var öðruvísi en hann kynnti opinberlega, samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins í dag.
Sigurjón hafði verið til umfjöllunar í fjölmiðlum vegna hugsanlegs hagsmunaárekstrar vegna eignarhalds hans á útgerðinni Sleppu ehf. eftir að hann framseldi 51 prósents hlut hennar til Sigurbjargar Áróru Ásgeirsdóttur. Samkvæmt yfirlýsingum hans á fréttavefnum Vísi sumarið 2025 samdi hann um að fá greiddar 16 til 18 milljónir króna fyrir hlutinn í útgerðinni af hendi Sigurbjargar, sem þá var 28 ára gamall skipstjóri, búsett í Ólafsfirði. Samningnum var hins vegar rift 23. mars síðastliðinn og kom fram í samningnum að umsamið kaupverð hefði í reynd verið 255 þúsund krónur, en ekki 16 til 18 milljónir króna. Endanlegt verð, samkvæmt riftunarsamningi, endurspeglar hlutdeild í nafnverði hlutafjárins, sem er staðlað 500 þúsund krónur við skráningu einkahlutafélaga.
Salan breytti litlu
Sigurbjörg var skráð sem raunverulegur eigandi …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir