Hætta á að lánin hækki þó íbúðaverð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Áhætta lántaka
Áhætta lán­taka Már Wolfgang Mixa vill að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði í stað vísi­tölu neyslu­verðs. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Lækki íbúða­verð um 5 pró­sent á næstu tólf mán­uðum á meðan verð­bólga verður 4 pró­sent gæti kaup­andi sem greiddi 20 pró­sent af íbúð­ar­verði í útborgun tapað 41 pró­senti af eigin fé sínu á einu ári. Íbúðin lækkar þá í verði en verð­tryggða lánið hækkar. Þetta sýnir útreikn­ingur Más Wolfgangs Mixa hag­fræð­ings.

Raunverð íbúða hefur þegar lækkað, sam­kvæmt gögnum HMS, en urm­ull nýrra íbúða bíður þó enn tómur og óseldur. Það gæti kallað á enn frek­ari lækkun hús­næð­is­verðs en þegar hefur orðið. Már segir nær alla áhætt­una af verð­tryggðum lánum liggja hjá lán­tak­anum og vill tengja lánin við íbúða­verð í stað vísi­tölu neyslu­verðs.

Skellurinn kemur úr tveimur áttum

Dæmið sem Már tekur til að útskýra þetta er af íbúð sem kostar 50 millj­ónir króna og á hvílir 40 millj­óna króna verð­tryggt lán. Eigið fé kaup­and­ans er 10 millj­ónir. Lækki íbúðin um 5 pró­sent er hún metin á 47,5 …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár