Undanfarið hafa fréttir um brot sem karlar fremja gegn konum setið í mér. Það eru helst afleiðingar slíkra brota – eða öllu heldur skorturinn á þeim – sem láta mér fallast hendur.
Eftir hið eiginlega sjokk sem felst í því að lesa fréttir um glæpi karla gegn kynsystrum mínum kemur reiðin, sorgin, hræðslan og óþægilegi léttirinn að vera ekki fréttaefnið.
Ég er reglulega að velta fyrir mér menningunni hér í jafnréttisparadísinni þar sem kynbundið ofbeldi virðist fá að grassera. Orð gegn orði en samt einhvern veginn alltaf orð karls sem vegur meira en orð konu.
Nýlega gerði ég óformlega könnun og greindi þar forréttindahóp á Íslandi. Ég spurði vini mína hvað það þýddi að vera tæp gella. Svörin voru aðeins mismunandi. Tæp gella er mögulega að stunda framhjáhald, einhver sem segir ósatt eða óviðeigandi hluti, mögulega einhver sem ekki er sniðugt að umgangast. Hún getur hreinlega líka …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






























































Athugasemdir