Normið sem við flest á Vesturlöndum ölumst upp við er samfélag með nær takmarkalausa neyslumöguleika. Stöðugt kemur eitthvað nýtt á markað sem á að auðvelda okkur lífið og stuðla að velgengni og hamingju. Við höfum gert neyslu að lífsstíl og reynum oft að sækja andlega fullnægingu og sjálfsánægju í að kaupa hluti. Við teljum jafnvel að hamingjan vaxi með auknum kaupmætti. Við tjáum okkur með neyslu, viljum sýna hver við erum, fyrir hvað við stöndum, að við höfum náð árangri. Ömmur okkar og afar keyptu til þess að eiga og fóru vel með hlutina svo þeir myndu endast. Gamalt var fallegt. Í dag kaupum við til þess að neyta í stað þess að varðveita. Nýtt er fallegt.
Neysla á forsendum hagkerfis
Framboð af alls kyns vörum sem enginn bað um og öflug markaðssetning búa til gerviþarfir og langanir. Hafið þið hugleitt hvaðan þessar langanir og meintar þarfir koma? Hefur ekki hagvaxtarkerfið þau áhrif að við afsölum okkur sjálfstæðum löngunum, áhugamálum og eigin vilja? Í staðinn tökum við upp mynstur af þörfum og löngunum sem eru ríkjandi í samfélagi sem er mótað af kröfum hagkerfis.
„Partíið heldur áfram en áherslan verður að njóta frekar en neyta“
Neyslukerfið er ekki hannað til þess að uppfylla þarfir okkar, heldur frekar til þess að skapa þarfir, því nýjar vörur lofa okkur alltaf betra lífi. Kerfið kallar stöðugt fram tilfinninguna um skort. Neyslan verður lífsstíll og þær áherslur minnka vægi annarra þátta í daglegu lífi sem færa okkur frekari lífsfyllingu, eins og tími með fjölskyldu og vinum, útivera, upplifanir og skapandi athafnir.
Neysluhyggjan skaðar
Neysluhyggjan skaðar náttúru, einstaklinga og samfélög. Og vitið þið hvað, alþjóðleg viðhorfskönnun hefur sýnt að um 70 prósent fólks með meðal- eða há laun er sannfært um þetta og einnig um að það muni ekki draga úr hamingju eða vellíðan að kaupa og eiga minna. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (IPCC) bendir einnig á að nægjusemi ásamt mörgum öðrum loftslagsaðgerðum muni leiða til minni eftirspurnar eftir orku, auðlindum, landgæðum og vatni. Nægjusemi er mikilvæg forsenda fyrir sjálfbæra þróun.
Ofneysla er kerfislægt og menningarlegt vandamál. Hvenær er nóg nóg? Við þurfum að skilgreina það upp á nýtt, ekki einungis hjá einstaklingum heldur hjá samfélögum. Höfum í huga að það er ekki hægt að aftengja hagvöxt frá neikvæðum áhrifum á náttúru og loftslag en það er hægt að aftengja velsæld og lífsgæði frá hagvexti!
Breytum um stíl
Mörg okkar óttast þær breytingar sem við þurfum að gera til að minnka neikvæð áhrif okkar á náttúru og loftslag. Talað er um fórnir og að „partíið væri þá búið“. En þegar nánar er að gáð hefur aukin nægjusemi ávinning í för með sér hjá þeim sem hafa allt til alls og miklu meira en nóg. Með því að hætta lífsgæðakapphlaupinu spörum við tíma, orku og peninga sem við getum nýtt í upplifanir, samveru, slökun og við að skapa gott samfélag. Við nærum líkama og sál varanlega og frelsum okkur frá skyndilausnum með kaupum á hlutum og stöðutáknum í kapphlaupi við aðra, á forsendum annarra. Við minnkum hraðann í samfélaginu og eflum virðingu og þakklæti. Það skapast meira rými til þess að nýta hæfileika okkar sjálfra. Allt þetta stuðlar frekar að hamingju en meiri neysla. Partíið heldur áfram en áherslan verður að njóta frekar en neyta.
Betra líf með nægjusemi
Við mannfólkið getum breytt um sjónarhorn og hugsunarhátt. Ef við gerum það þá sjáum við að með aukinni nægjusemi getum við haldið áfram að lifa góðu lífi og jafnvel auka lífsgæði okkar. Nægjusemi er öflugt og einfalt skref til þess að minnka vistsporið ókeypis og það skilar strax árangri. Nægjusemi er forsenda fyrir árangri í loftslagsmálum og sjálfbærri þróun. Við þurfum nýjan samfélagssáttmála sem byggir á gæðum sem við veljum sjálf. Ræðum það, hvetjum hvert annað og skiptumst á reynslu og hugmyndum.
Kynnið ykkur hvatningarátakið „Nægjusamur nóvember“ sem Grænfáninn og Landvernd hafa staðið fyrir árlega síðan 2022. Þið eruð velkomin með, gerum þetta saman!
Höfundur er sérfræðingur í menntun til sjálfbærni
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir