Kristín, hvað hefurðu lært? spurði ég sjálfa mig ströng þegar ég staðnæmdist við spegilinn og greip bíllyklana. Hefurðu lært eitthvað? Það stökk aðeins í mér hjartað. Eins og ég væri að taka sjálfa mig upp í tíma og ekki tilbúin, frekar en fyrri daginn.
Og svaraðu nú. Og svaraðu rétt. Ég sem var sjaldnast búin að lesa bókina, oftast að hugsa eitthvað annað, mætti löngu á eftir sjálfri mér og skildi ekki alltaf pensúmið og geri auðvitað ekki enn því pensúmið er lífið sjálft.
En ég hlýt að hafa lært eitthvað, orðin þetta gömul, fædd þegar Surtsey fór að gjósa og Kennedy var skotinn. Allir voru í uppnámi og mamma fékk hríðir af geðshræringu. Hún tók leigubíl með systur mína og hálfeldað lambalæri – skilaði báðum til ömmu og afa áður en hún kjagaði inn á Landspítala og fæddi aðra stelpu.
Og hvað hefur svo þessi stelpa …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























































Athugasemdir