Sauðburður

Kafli úr bók­inni Sauð­burður eftir Hermann Stef­áns­son.

I know where the evil lies

Inside of your heart

If youʼre gonna try to make it right

Youʼre surely gonna end up wrong

— Lou Reed

Satt sagt um allt nema nöfn

Ég vildi að ég væri bóndi. Lifði í nánd við skepnur, tæki til hend­inni fum­laust þegar þörf væri á. Samlífi við nátt­úr­una er for­rétt­inda­staða. Það er engu minni tign í því að gefa hey á garða en að skrifa bækur. Maður getur rambað í harm hvar sem er. Það sem máli skiptir er hvernig maður höndlar harm­inn.

Senni­lega hef ég upp­lifað fleira en margur bóka­béus­inn.

Sumu er erfitt að segja frá. Það gæti hrein­lega lent fyrir dóm­stólum. Ekki að ég væri sá ákærði — en hef ég áhuga á að eiga aðkomu að dóms­máli?

Ojæja. Ætli hverjum og einum verði ekki refsað hvort sem er þegar öllu er á botn­inn hvolft.

Hér í þessu skrifi er engu logið. Ég vil ekki segja neitt annað en það sem er ein­lægt og satt, að því er mín besta vit­und segir.

En ég sé ekki að ég geti notað raun­veru­leg nöfn þeirra sem við sögu koma. Ég hnika kannski líka til dag­setn­ingum og slíku smá­legu

Í dag á ég í mestum sam­skiptum við Sigga (hann heitir það ekki í alvör­unni) af þessum þremur. Ég hitti hann — og þau öll — fyrst árið 2015.

Hann var sér­stakur að sjá þegar ég leit hann fyrst almenni­lega augum. Hann sat við borð­stofu­borðið á bóndabæ sem ég ætla að kalla Gröf. Tölvan var fyrir framan hann. Siggi var nið­ur­sokk­inn. Þó leit hann upp og tal­aði við mig. Myndin er greypt í hug­ann. Það var svo skýrt í borð­stof­unni hvað hann var mik­ill karakter, þótt hann væri feimn­is­legur.

Hann var sér­stakur. En ekki það skrýtn­asta við þennan bæ.

Það er ekki víst að ég skilji allt.

Til verka

Tilefnið var á þessa leið: Þetta til­tekna ár var ég óvið­bú­inn því að þurfa að leita mér að vinnu. Árið áður fékk ég tólf mán­uði í lista­manna­laun, en þetta ár fékk ég til­kynn­ingu um að úthlut­unin til mín væri núll mán­uðir.

Ég brá á ýmis ráð til að sjá mér og mínum far­borða. Eftir á að hyggja var þetta hollt. Ég réð mig sem aðstoð­ar­mann múr­ara á höf­uð­bóli í Vatnsdal. Græddi ágæt­lega á því. Við unnum eins og þjarkar.

Ég man að ég renndi af stað í sendi­bíl með fremur öldruðum múr­ara sem var hjart­veikur. Í bak­sýn­is­spegl­inum hékk helgi­gripur, mynd af Maríu mey sem sveifl­að­ist til og frá. Annað íkon af Maríu var fest með kenn­aratyggjói nálægt fram­rúð­unni. Kona múr­ar­ans var frá Fil­ipps­eyjum og kaþ­ólsk.

Þegar við vorum komnir lang­leið­ina, lengst norður í land, hringdi kærasta mín og ég reynd­ist vera með bíllyk­il­inn í vas­anum, þann eina. Hún gat því ekk­ert ekið. Ég get verið utan við mig. Hún hló að mér. Ég kann því vel. Ég fékk múr­ar­ann til að stoppa sendi­bíl­inn við vega­sjoppu þar sem ég sat fyrir fólki af handa­hófi á leið suður og bað það um að koma bíllykl­inum til skila. Þau sam­þykktu það og komu lykl­inum sam­visku­sam­lega á áfanga­stað.

Fólk er frekar gott í sér og almenni­legt.

Erfiði

Eig­in­lega kann ég betur við lík­am­lega erf­ið­is­vinnu á borð við múr­verk en skrif­stofu­vinnu. Maður þarf að sjá fyrir sér og mér er ekki illa við að stunda lík­ams­rækt í leið­inni. Múrverk hent­aði mér vel. Tveir Pól­verjar, auk mín og gamla múr­ar­ans, unnu við end­ur­bætur á höf­uð­bólinu. Þetta var mikið verk.

Ég sá í fyrstu til þess að alltaf væri nóg til af steypu, sem ég bjó til í hræri­vél og fór með til þeirra inn um kjall­ara­dyr í hjól­börum.

Við gistum í nálægum sum­ar­bú­stað og borð­uðum hjá bónda­hjónum á næsta bæ. Þau voru skemmti­leg og gæða­legt fólk. Á bænum var rækt­ar­lega búið og kall­arnir sem unnu með mér við múr­verkið voru fínir.

Þegar frá leið sá ég mest­megnis um þá vinnu með slíp­irokk sem gamli múr­ar­inn hafði unnið en var að gef­ast upp á. Hún fólst í því að fjar­lægja gam­alt steypu­lag af veggjum á efri hæð­unum. Hann virt­ist ekki hafa hjarta í verkið og fékk hósta­köst vegna ryks­ins. Ég setti upp grímu og ein­henti mér í þetta. Mér hefur stundum fund­ist að það sé ekki alvöru vinna ef hún er ekki lík­am­legt erf­iði.

Hvað gera bændur þá?

Bóndinn á bænum þar sem við borð­uðum gat verið skens­inn. Eitt kvöldið kom hann glettn­is­legur á svip og til­kynnti okkur að kvöld­matnum seink­aði.

Hann sagði að hann hefði skotið hross síð­degis, blóðgað það og hengt upp svo því gæti blætt. Því væri enn að blæða. Þess vegna seink­aði kvöld­matnum.

Hvað gera bændur þá?

Hann var trú­verð­ugur rétt á meðan hann sagði þetta en laumu­legt glott kom upp um hann. Hann lang­aði til að athuga hvort hann gæti gengið svo­lítið fram af okkur borg­ar­bú­unum.

Það tókst ekki. Gamli múr­ar­inn vissi strax hvers kyns var og ég líka og við hlógum. Sögðumst bíða alveg þol­in­móðir eftir matnum.

Bónda­konan var þýsk. Þannig er það víða til íslenskra sveita. Allar hesta­stelpur eru þýskar og mikið er af fólki frá öðrum löndum í ýmsum störfum. Maturinn var sér­lega góður og á milli þeirra hjóna gneist­aði af húmor og ham­ingju. Hún var ákveðin og sterk og hann rögg­samur og fynd­inn.

Í hádeg­is­fréttum meðan við borð­uðum hádeg­is­mat einn dag­inn var frétt um mót­mæli nokk­urra kvenna á Aust­ur­velli. Ég hafði tengt við húmor bónd­ans og lagði drög að skýr­ingu á því hverju mót­mælin sættu. Hann henti skýr­ing­una strax á lofti og ýkti um helm­ing:

„Já, þær vilja ekki sjá þennan hel­vítis kosn­inga­rétt!“ sagði hann.

„Auðvitað ekki,“ svar­aði ég. „Kosn­inga­rétt­ur­inn er bara blekk­ing til að láta þær halda að þær ráði ein­hverju þegar þær ráða ekki neinu.“

Hann sagði:

„Við viljum ekki sjá þetta djöf­uls drasl!“

Hann kímdi. Ég hló.

Bland.is

Aug­lýs­ingin var svona:

Vantar harð­dug­legan starfs­kraft í sauð­burð í vor, helst vanan, á [Gröf]. Mikil og krefj­andi vinna en skemmti­leg, jafnt við elda­mennsku sem og kinda- og lamba­stúss. Vertíðin hefst af fullum þunga 25. apríl og stendur yfir út maí en ekki er þörf fyrir aðstoð nema fram undir 20. maí.

Ég skrif­aði og spurð­ist fyrir. Sú sem svar­aði var Elínóra. Hún gaf mér upp sím­ann sinn og við ræddum saman sím­leiðis um launa­mál og aðstæður á bænum. Ég var ráð­inn.

Svo hélt ég af stað sem leið lá.

Auðvitað fylgdi ekki aug­lýs­ing­unni að dvölin ætti einna helst eftir að líkj­ast því að sitja undir sverði sem hangir á einu hross­hári, bundnu við sverðs­hjöltun, yfir höfði fólks og getur fallið á hverri stundu og valdið bráðum bana. Eins og raunin varð í grísku goð­sögn­inni um Damókles, smjaðrar­ann sem þáði að sitja í sæti Díónýs­í­usar kon­ungs án þess að átta sig á hversu hættu­leg sú seta væri. Engin vopn voru nefnd. Ég gat með engu móti ráðið af atvinnu­aug­lýs­ingu á net­svæði að hárið mjóa sem hélt sverð­inu yfir höfðum ætti eftir að slitna og ugg­væn­leg­ustu hörm­ungar dynja yfir.

Mig gat ekki órað fyrir hvað ég hafði komið mér út í.

Ég vissi ekki að bær­inn líkt­ist meira forn-grískum harm­leik en venju­legum íslenskum bóndabæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár