Claus Pilehave situr fyrir á svarthvítri portrettmynd, klæddur dökkri peysu.
Leik­stjór­inn Claus Pilehave, annar leik­stjóri hinnar umdeildu myndar, var á Íslandi fyrir skemmstu, þegar myndin var sýnd í Norræna hús­inu. Mynd: Golli

Virkni þöggunar gagnvart nýlendusögunni

Danir urðu kyndil­berar tján­ing­ar­frelsis í umræðu vegna skop­mynd­anna af Múhameð spá­manni. Þegar DR frysti heim­ilda­mynd­ina Grøn­lands hvide guld, mynd um mein­tan afrakstur Dana af krýólít­námu­vinnslu í Græn­landi upp á 400 millj­arða danskra króna, kvikn­aði svo eld­fim umræða í Danmörku að spyrja má: Hversu vel þola Danir sjálfir speglun ann­arra? Er rétt að þetta hafi verið mestu mis­tök DR?

„Mið­viku­dag­ur­inn 19. febr­úar 2025 er bæði svartur og nokkuð óvenju­legur dagur í 100 ára sögu DR. Þá missti DR tökin og kjarkinn til að verja með gagn­rýnum hætti sjálf­stæði sitt. Þetta gerð­ist eftir mik­inn utan­að­kom­andi póli­tískan þrýst­ing og jafn­framt harða innri umræðu. En þennan dag ákvað frétta- og heim­ilda­mynda­deild DR að heim­ild­ar­myndin Grøn­lands hvide guld, sem fyrst var sýnd á DR1 þann 9. febr­úar, skyldi „af-útgefin“– þ.e. fjar­lægð af dag­skrár­svæði rík­is­sjón­varps­ins vegna opin­berrar gagn­rýni sem að mynd­inni hafði beinst …“

Svo hljómar upp­haf skrifa emeritus rann­sókn­ar­pró­fess­ors­ins Ib Bondebjerg í ess­eyju á miðl­inum Copenhagen-review-of-communication. Þarna vísar hann til sýn­ingar Danska rík­is­sjón­varps­ins (DR) á heim­ild­ar­mynd sem það hafði tekið þátt í vinnslu á en síðan sagt sig frá um 10 dögum eftir sýn­ingu og haml­aði frek­ari birt­ingu á innan Dan­merkur í heilt ár. Þá var frétta­stjór­inn sem sagður var bera ábyrgð á henni innan DR, Thomas Falbe, rek­inn.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár