Í kennslu­stund Anna María Jóns­dóttir kennir íslensku við Háteigs­skóla. Hún lætur nem­endur meðal ann­ars lesa bók­menntir og rýna í fréttir. Mynd: Golli

Lesa fréttir og Laxness: „Þau geta það“

Reglu­lega er býsnast yfir ung­ling­unum, kvartað yfir bágum lesskiln­ingi og því að þau séu hætt að lesa Laxness. Nýlega voru kynntar nýj­ustu nið­ur­stöður PISA eyrna­merktar árinu 2025 og reynd­ust aðeins 56 pró­sent nem­enda búa yfir grunn­hæfni í lesskiln­ingi. En hvað segir íslensku­kenn­ar­inn? Rætt við Önnu Maríu Jóns­dóttur sem rýnir í fréttir með nem­endum sínum og fær þá til að lesa Laxness. Og umb­unar þeim stundum með brjóst­sykri.

Í umræðu sam­fé­lags­ins heyr­ast umkvart­anir þess efnis að lesskiln­ingi of margra ung­linga sé ábóta­vant. Krakk­arnir lesi varla bók lengur, heldur grúfi sig ofan í snjall­síma sína og því sé íslenskan í dauða­teygjum. Mikil er ábyrgð grunn­skóla­barna, sé umræðan dregin saman í stór­karla­legum dráttum. En hvað með það jákvæða? Heyrum við kannski minna af því?

Og hvað með íslensku­kennar­ann – með greini? Alla þá íslensku­kenn­ara sem galdra á hverjum degi, svipað og kenn­ar­inn í bíó­mynd­inni Dead Poets Society, með leik­ar­anum Robin Williams heitnum, sem svo margir mið­aldra í dag sáu á sínum tíma. Kvikmynd um óhefð­bund­inn kenn­ara sem kennir við virtan heima­vist­ar­skóla fyrir drengi í Nýja-Englandi og notar ljóð til að hvetja þá til sjálf­stján­ingar en líka til að hrista þá úr stífu hlut­verki.

Ung­ling­ur­inn minn, líkt og jafn­aldrar hans, átti til að grúfa sig í sím­ann og horfa á bíó­myndir frekar en að lesa bók. Bara ný kyn­slóð, hugs­aði for­eldrið. En viti menn! Allt í einu var ung­ling­ur­inn far­inn að fletta þykkum bókum úr bóka­skápnum, lesa Sölku Völku og grúfa sig álíka spenntur ofan í rit­gerðir og hann und­ir­býr sig fyrir hand­bolta­mót. Hann var að upp­götva fjár­sjóð­inn í bókum og um leið frelsið sem býr í því að tjá sig með skrifum, að bragða á hinum hug­víkk­andi miði sem drengirnir í Dead Poets Society drukku í sig í gegnum bók­mennta­texta. Hvað var að ger­ast?

Jú, hann hafði fengið nýjan en gam­al­reyndan íslensku­kenn­ara og … eitt­hvað hafði breyst. Minnug þess hversu örlaga­rík áhrif íslensku­kenn­ari minn hafði haft á mig á sama aldri lang­aði mig að vita meira um þennan kenn­ara, hana Önnu Maríu sem kennir við Háteigs­skóla, á gömlum heima­slóðum sínum, alin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár