Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP31, lýkur í dag í skugga sívaxandi losunar gróðurhúsalofttegunda og versnandi loftslagsvár.
Þrátt fyrir ákveðnar framfarir undanfarin ár, er aukin hætta á að farið verði framúr 1,5 gráðu markmiði Parísarsamkomulagsins. Nýjustu skýrslur vísindamanna Sameinuðu þjóðanna sýna að hættan á þurrkum, flóðum, hækkun sjávarborðs og skógareldum eykst með hverju broti hækkandi hitastigsgráðu. Hvert ár skiptir máli og þörfin fyrir raunverulegar loftslagsaðgerðir er brýn. Hér verður að setja hagsmuni alls mannkyns í forgang, ekki peninga- og hagsmunaaflanna.
Á COP31 var áherslan meðal annars á að hraða orkuskiptum, draga úr notkun jarðefnaeldsneytis, efla endurnýjanlega orku og bæta orkunýtni. Jafnframt var lögð áhersla á alþjóðlega samvinnu og að þróaðri ríki styðji þau sem verst verða fyrir áhrifum loftslagsbreytinga. Loftslagsváin virðir engin landamæri og ábyrgðin er sameiginleg. Það er jú ábyrgð okkar allra þegar híbýli og lífsviðurværi fjölda fólks hverfur vegna áhrifa mannsins á umhverfi sitt.
Ísland eftirbátur Norðurlandanna í loftslagsmálum
Þegar COP31 lýkur og við lítum hingað heim, er ljóst að við stöndum okkur alls ekki sem skyldi. Þrátt fyrir einstakt forskot af náttúrunnar hendi þegar kemur að endurnýjanlegri orku og framúrskarandi skilyrðum, er Ísland eftirbátur Norðurlandanna í samdrætti losunar og stefnir ekki í að ná loftlagsmarkmiðum sínum fyrir árið 2030. Þetta kemur fram í nýrri stöðumatsskýrslu Loftslagsráðs og nýjustu losunartölum stjórnvalda frá því í september.
Þetta er óásættanlegt fyrir þjóð sem hefur alla burði til að vera í fararbroddi í loftslagsmálum. Við þurfum metnaðarfyllri aðgerðir til að draga úr losun, aðgerðaáætlun til að aðlagast loftslagsbreytingum og tryggja að kolefnishlutleysi árið 2040 verði að veruleika.
Náttúran, loftslagið og dýravelferð í forgang
Við í Vinstri grænum höfum miklar áhyggjur af þeirri dapurlegu staðreynd að ríkisstjórnin setji loftslagsmál, náttúruvernd, orkuskipti og nýsköpun ekki í forgang. Á nýafstöðnum flokksráðsfundi VG var lýst yfir miklum áhyggjum af niðurskurði til þessara málaflokka. Það er okkar mat að metnaðarleysi ríkisstjórnarinnar í umhverfis- og loftslagsmálum lýsi skorti á skýrri forgangsröðun og framtíðarsýn á sama tíma og loftslagsvá og hnignun líffræðilegrar fjölbreytni kalla á tafarlausar aðgerðir. Svo virðist sem skammtímahagsmunir atvinnulífsins og sérhagsmunaaðila vegi þyngra en náttúruvernd og almannahagsmunir. Náttúran er ekki ótakmörkuð auðlind til nýtingar á forsendum markaðarins, heldur undirstaða lífsgæða, velferðar og framtíðar komandi kynslóða. Vernd náttúrunnar getur því aldrei verið aukaatriði í íslenskri pólitík.
Það er með öllu óásættanlegt að ríkisstjórnin hyggist skera niður fjárframlög til Loftslags- og orkusjóðs um 3,2 milljarða króna milli ára, þegar þörfin fyrir aðgerðir hefur aldrei verið brýnni. Ísland verður að standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar með fjármögnuðum og tímasettum aðgerðum og kolefnisjöfnun eða kostnaðarsamar bókhaldslausnir koma ekki í stað raunverulegs samdráttar í losun.
„Umhverfisvernd og félagslegt réttlæti eru ekki andstæður, heldur forsendur hvors annars“
Við þurfum einnig að horfa til áhrifa mataræðis á loftslag og lýðheilsu en líkt og Johan Röckström, einn helsti vísindamaður á sviði loftslagsmála og sjálfbærni, benti á í áhrifaríkum fyrirlestri í Háskóla Íslands í októberbyrjun, þá er minni kjötneysla ein stærsta einstaka loftslagsaðgerð sem einstaklingar geta farið í ásamt breyttum samgönguvenjum. Stjórnvöld verða að auðvelda fólki að velja fæðu úr jurtaríkinu, efla innlenda framleiðslu og auka metnað í lífrænni ræktun.
Dýravelferð verður líka að vera í forgangi. Fréttir af aðbúnaði svína í íslenskum verksmiðjubúum kalla á sterk viðbrögð yfiralda, herða verður reglur um dýravelferð og afnema undanþágur og setja fjármuni í öflugra eftirlit. Vinstri græn munu áfram berjast fyrir bættri velferð dýra, enda er hún bæði siðferðileg skylda okkar, sameiginlegt hagsmunamál allra og hluti af því að bera virðingu fyrir náttúrulegum gæðum og dýraríki.
Náttúran verður að vera framar sérhagsmunum
Orkuskipti eru nauðsynleg í grænum umskiptum, en þau réttlæta ekki óheftar virkjanaframkvæmdir eða óafturkræf inngrip í verðmæta náttúru landsins. Vinstri græn hafna því með öllu að náttúruvernd víki fyrir gróðasjónarmiðum orkufyrirtækja, sjókvíaeldis eða orkufreks iðnaðar, á borð við gagnaver. Við höfum einnig áhyggjur af stórfelldum vindorkuáformum í boði einkaaðila með velvild stjórnvalda, án skýrari heildarstefnu og raunverulegs samráðs við almenning og heimafólk.
Áður en hlaupið er af stað í orkuöflunarverkefni þarf að byrja á því að setja orkusparnað og bætta orkunýtingu í forgang. Ákvarðanir um nýja orkuvinnslu verða að byggjast á faglegu mati, varúðarsjónarmiðum og virðingu fyrir Rammaáætlun sem er okkar besta verkfæri til að sætta sjónarmið nýtingar og verndar.
Náttúran verður ávallt að njóta vafans. Stjórnvöld verða því að efla náttúruvernd, friðlýsingar og vernd líffræðilegrar fjölbreytni til muna og setja meiri metnað í stefnumótun um hafsins, fjarða og viðkvæmra vistkerfa með skýrari markmiðum og tryggari fjármögnun.
Réttlát græn umskipti byggjast á lýðræði og félagslegu réttlæti
Við höfum séð hér á Íslandi að fólk vill hafa áhrif á ákvarðanir í sínu nánasta umhverfi er varðar náttúruvernd, Tryggja þarf lögbundinn rétt fólks til upplýsinga og aðkomu að ákvörðunum sem snerta náttúruna, samfélagið og framtíð landsbyggðanna. Almenningur verður að hafa raunveruleg áhrif á ákvarðanir um nýtingu náttúruauðlinda og tryggja þarf því opið og lýðræðislegt samráð við heimafólk og náttúruverndarsamtök.
Græn umskipti verða jafnframt að vera félagslega réttlát. Kostnaðurinn við þau má ekki leggjast þyngst á þau efnaminnstu og tryggja þarf öllum raunhæfa möguleika til orkuskipta, sjálfbærra samgangna og þátttöku í grænni atvinnuuppbyggingu og nýsköpun um allt land. Umhverfisvernd og félagslegt réttlæti eru ekki andstæður, heldur forsendur hvors annars og fólk þarf að upplifa og finna í sínu daglega lífi að græn umskipti eru okkur öllum í hag.
Það er til önnur leið sem er vinstri græn leið – fyrir náttúruna og loftslagið
Árangur í opinberum fjármálum verður ekki aðeins mældur í niðurskurði og afgangi ríkissjóðs heldur í bættum lífskjörum, auknum jöfnuði, öflugri grunnþjónustu og sjálfbæru atvinnulífi. Við í Vinstri grænum viljum efnahagsstefnu sem setur fólk og náttúru í forgang og tryggir sjálfbæra verðmætasköpun og réttláta skiptingu ávinning hennar.
Íslensk náttúra er undirstaða lífsgæða, velferðar og framtíðar komandi kynslóða hér á landi. Metnaðarfullar loftslagsaðgerðir, sjálfbær nýting náttúruauðlinda, vernd líffræðilegrar fjölbreytni og samfélag þar sem fólk og náttúra njóta forgangs verða að vera leiðarljós stjórnvalda.
Vinstri græn krefjast því að ríkisstjórnin axli ábyrgð og setji náttúruvernd og loftslagsmál í forgang. Það þarf pólitískan vilja, fjármuni og raunverulegar aðgerðir og það þarf raunverulega verkstjórn í umhverfis – og loftslagsmálum.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, og Bjarki Hjörleifsson, varaformaður Vinstri grænna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir