Margir læknar í Bandaríkjunum lærðu um mislinga sem sjúkdóm fortíðarinnar. Nú breiðast mislingar hins vegar aftur út víða um landið, vegna minnkandi þátttöku í bólusetningum, og eru orðnir raunverulegt vandamál.
„Mislingar voru eins og sjúkdómur úr sögubókunum, eitthvað sem maður sá einfaldlega ekki í Bandaríkjunum,“ sagði Trahern W. Jones, sérfræðingur í smitsjúkdómum barna í Utah, við AFP.
Pan American Health Organization Agency (PAHO) tilkynnti í gær að mislingar væru ekki lengur upprættir í Bandaríkjunum. Tilkynnt hefur verið um meira en 5.400 tilfelli í landinu á þessu ári, þar af yfir 500 í Utah, þar sem Jones starfar sem læknir.
„Þetta var eins og að rekast á draug úr fortíðinni, eitthvað sem maður á aldrei von á að sjá í raunveruleikanum,“ sagði hann.
Jones telur að tilkynnt tilfelli þessa bráðsmitandi sjúkdóms séu mun færri en þau eru í raun. Hann hefur sjálfur meðhöndlað mörg börn með …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir